<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-10-06T17:40:28" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 17:42:44 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T17:40:28">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Eins og Hæstiréttur bendir á þá var strax 2012
    bent á að það þyrfti að laga þetta. Í 12 ár samfleytt undir ríkisstjórn
    Sjálfstæðisflokksins var ekkert að gert. Við erum ekki búin að vera í tvö
    ár og erum að reyna að koma þessu í gegnum þingið. Við skulum ekkert reyna
    að vera í einhverjum leikjum. Það var bara stjórnarandstaðan sem stoppaði
    málið í síðasta skipti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En það sem hefur gerst er að meginforsenda hv. þingmanns og
    formanns Sjálfstæðisflokksins til að klára málið er enn til staðar. Það
    liggur alveg ljóst fyrir frá ESA að ef Alþingi klárar málið þá verður
    málið dregið til baka. Ég spyr: Eigum við ekki að fylgja eftir því sem
    m.a. — af því að hv. þingmaður var að tala um þjóðaratkvæðagreiðsluna og
    hvað var sagt í aðdraganda hennar, að við ættum að klára málið sjálf.
    Gerum þetta bara sjálf. Nú hefur Hæstiréttur komið ítrekað með þessar
    ábendingar um að við eigum að klára málin sjálf. Ef það er eitthvað sem
    við eigum að vita, m.a. í umræðunni í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna
    en líka varðandi þróun heimsmála, þá er það að við þurfum að standa við
    okkar alþjóðaskuldbindingar. Við þurfum að vinna á upptökuhallanum
    gagnvart ESA. Það er alvörumál. Það er alvörumál að senda líka skilaboð út
    í heiminn til okkar viðskiptaaðila þangað sem við sendum inn um tæplega
    70% af okkar útflutningsafurðum og það er ákall hjá íslensku atvinnulífi
    að við pössum upp á EES-samninginn. En síðan ætlar Sjálfstæðisflokkurinn
    að draga lappirnar. Ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta eftir að
    hafa horft á formann Sjálfstæðisflokksins. Það er eins og
    Sjálfstæðisflokkurinn sé að reyna að vera meiri Miðflokkur en
    Miðflokkurinn sjálfur, af því að allt sem hv. þingmaður sagði hér varðandi
    síðasta ár, eins og að réttaróvissa væri skaðleg fyrir íslenskt atvinnulíf
    og í raun andstæð markmiðum okkar um sterkt réttarumhverfi og að
    málshöfðun fyrir EFTA myndi ekki aðeins hafa í för með sér vantraust
    heldur einnig krefjast flóknari og víðtækari lagaumbóta, stendur eftir.
    <ns:bjalla/> Hvar er reisnin? Ég skora á Sjálfstæðisflokkinn að standa með
    ríkisstjórninni við að verja okkar mikilvægasta viðskiptasamning og okkar
    alþjóðaskuldbindingar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>