<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T17:43:01" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 17:45:18 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T17:43:01">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Það er leitt ef formaður Viðreisnar veit ekki hvort
    hann á að hlæja eða gráta. Það er leitt ef ég sem formaður
    Sjálfstæðisflokksins veld þessu mikla tilfinningaróti hjá hæstv.
    utanríkisráðherra. Hér kemur utanríkisráðherra eins og ráðherrum er tamt
    að gera í þessari ríkisstjórn, koma hér sífellt með útúrsnúninga og svara
    engu. Tala um að ekkert hafi verið gert og tala hér um að það hafi verið
    stjórnarandstaðan á síðasta ári sem stoppaði þetta mál. Nú veit formaður
    Sjálfstæðisflokksins ekki hvort hún eigi að hlæja eða gráta því að
    formaður Sjálfstæðisflokksins og Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn eða
    Framsókn er ekki með neitt dagskrárvald í þessu húsi. Það eru aftur á móti
    ríkisstjórnarflokkarnir með, ríkisstjórnarflokkarnir sem settu þetta mál á
    dagskrá vorið 2025 og tóku sjálfir meðvitaða ákvörðun um það að klára ekki
    málið heldur einhenda sér í skattahækkanir á atvinnulífið. Það var
    forgangsatriði ríkisstjórnarinnar á þeim tíma. Það var aftur mælt fyrir
    málinu í september á síðasta ári og nefndaráliti skilað 2. desember 2025.
    Af hverju kláraði ekki ríkisstjórnin þetta mál fyrir síðustu jól? Það
    hefði verið hægur vandi. Þið stýrið dagskránni í þessu húsi. Það gerir
    ekki formaður Sjálfstæðisflokksins. Það gerir ríkisstjórnin og
    ríkisstjórnin tók síðan ákvörðun um það að afgreiða ekki þetta mál heldur
    rjúka af stað í þjóðaratkvæðagreiðslu sem enginn bað um, <ns:bjalla/> og
    ákvað að eyða allri sinni orku á þessu ári í þá vegferð í stað þess að
    reyna að ná hér stjórn á efnahagsmálum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>