<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-10-06T17:45:22" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 17:46:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T17:45:22">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er alveg rétt. Við erum að taka til og
    höldum því áfram og munum ekki gefa okkar eftir í þessu. Ég vil fá að
    spyrja hv. þingmann: Er hún sammála málinu? Mun hún greiða atkvæði með
    þessu máli? Það eru ekki útúrsnúningar af minni hálfu því ég er að vitna í
    hennar eigin orð. Þetta er bara flótti frá ábyrgð á eigin orðum og
    gjörðum. Hvað sem hver segir þá var Sjálfstæðisflokkurinn 12 ár samfleytt
    í ríkisstjórn en hafði ekki burði til að klára málið. Það er ágætt að
    heyra að formaður Sjálfstæðisflokksins viti hver er með dagskrárvaldið og
    þá er bara gott að vita að það er ekki á okkar ábyrgð ef málið nær ekki að
    klárast heldur er ég spennt að fylgjast með því hvort stjórnarandstaðan
    ætli að fara til að mynda í málþóf í þessu máli, ekki bara Miðflokkurinn
    heldur með fulltingi Sjálfstæðisflokksins, um að verja mikilvægasta
    viðskiptasamning sem Ísland hefur gert. <ns:bjalla/> Eins og ég segi,
    samkeppnin um að vera meiri Miðflokkur en Miðflokkurinn sjálfur er
    greinilega hjá Sjálfstæðisflokknum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>