<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T17:46:42" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 17:48:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T17:46:42">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Þetta er náttúrlega alveg með ólíkindum. Umræðan
    var að byrja hér fyrir nokkrum klukkutímum og þá er hæstv.
    utanríkisráðherra farinn að tala um málþóf. Þetta minnir á orð hæstv.
    atvinnuvegaráðherra á síðasta ári þegar umræður hér um mál voru búnar að
    standa í tvær klukkustundir, held ég, og þá hrópaði Viðreisn á sama tíma:
    Málþóf, málþóf. <ns:frammíkall skst="Utanrrh.">Íslensk …</ns:frammíkall>
    Ég ætla að minna á það að það er engin trygging fyrir því að málinu verði
    lokið gagnvart ESA þó að það verði samþykkt hér. Það er engin trygging
    fyrir því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar líka að fá að nefna hér að í sumar þá sögðust leiðtogar
    ríkisstjórnarinnar ætla að virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar hver
    svo sem hún yrði. Flestir litu þá þannig á að ef það kæmi nei út úr þeirri
    þjóðaratkvæðagreiðslu væri málinu þar með lokið og umsókn dregin til baka.
    Þess vegna vil ég beina því til hæstv. ráðherra hvort hún ætli ekki að
    beita sér fyrir því með okkur í stjórnarandstöðunni <ns:frammíkall/> að
    draga þessa umsókn til baka. <ns:frammíkall skst="Utanrrh.">Ætlar þú að
    greiða atkvæði með málinu?</ns:frammíkall> <ns:bjalla/> Ætlar þú að draga
    þessa umsókn til baka, <ns:frammíkall/> hæstv. ráðherra?
    <ns:frammíkall>Heyr, heyr.</ns:frammíkall></ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="IngÞ">Forseti áréttar að ekki skuli eiga í
    samtölum við þingmann í ræðupúlti heldur gefa viðkomandi hljóð.
    <ns:frammíkall skst="Utanrrh.">…
    svara.</ns:frammíkall></ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>