<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T17:48:21" skst="IngD" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 17:50:26 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T17:48:21">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir
    prýðisgóða ræðu hér áðan. Ég verð að segja í upphafi, þó að ég sjái að
    hæstv. utanríkisráðherra hafi látið sig hverfa úr anddyrinu, að það var í
    raun og veru ótrúlegt að hlusta á hæstv. utanríkisráðherra í andsvörum við
    hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur áðan og orðið sem kemur upp í hugann er
    gaslýsing. Mér fannst í raun og veru bara ótrúlegt að hlusta á ráðherrann
    og orðfærið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi yfirvofandi málaferli þá höfum við heyrt stjórnarþingmenn
    hér í þingsal í dag segja að það séu til dómsmál sem við höfum engan áhuga
    á að vinna. Mig langar að spyrja hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur af því
    tilefni: Treystir hún hæstv. utanríkisráðherra til að velja öflugt
    málsvarnarteymi til að verja Ísland, íslenska hagsmuni og stjórnarskrá
    Íslands gagnvart ESA? Treystir hún hæstv. utanríkisráðherra til að fá
    öflugasta teymi sem til er til að verja Ísland fyrir EFTA-dómstólnum? Og
    önnur spurning: Telur þingmaðurinn ekki eðlilegast að fyrst ESA er búið að
    ákveða að höfða mál að þetta frumvarp verði lagt til hliðar og við förum
    bara í gegnum dómsmálið og fáum þá bara úr þessu öllu saman skorið? Því
    það eru álitamál og ég er þeirrar skoðunar að stjórnarskráin eigi alltaf
    að njóta vafans.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>