<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T17:50:40" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 17:52:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T17:50:40">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningu sem til mín
    er beint. Hér er spurt hvort ég treysti ríkisstjórninni til að halda á
    þessu máli. Ríkisstjórnin, eins og ég nefndi hér áðan, fór af stað með
    þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem hún sagðist ætla að treysta þjóðinni. Þá
    verður ríkisstjórnin sömuleiðis að þora að taka við niðurstöðu þeirrar
    þjóðaratkvæðagreiðslu og fylgja henni eftir. Hæstv. utanríkisráðherra
    sagðist ætla að fara með málið til meðferðar í hv. utanríkismálanefnd. Ég
    kannast ekki við að það hafi verið gert og hæstv. utanríkisráðherra ætlaði
    að ráðfæra sig um næstu skref við utanríkismálanefnd. Ég kalla eftir
    svörum: Hefur það verið gert?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sömuleiðis vil ég líka fá að nefna það að þetta mál fer nú til
    nefndar. Það fer núna, að lokinni þessari 1. umræðu, til
    utanríkismálanefndar til frekari skoðunar og ég hef trú á því að nefndin
    taki vel utan um þetta mál og ígrundi það vel vegna þess að staða þessa
    máls hefur gjörbreyst frá því að það var síðast í meðförum þingsins. Það
    er óyggjandi. Eins og ég nefni þá er engin trygging fyrir því að það fáist
    endanleg niðurstaða í þetta mál ef það er samþykkt hér en ég bind vonir
    við það að málið fái góða umfjöllun í nefndinni og verði skoðað ítarlega
    þar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>