<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T17:52:51" skst="IngD" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 17:54:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T17:52:51">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir
    svörin. Hún trúir því að nefndin taki vel utan um þetta mál. Ég ætla bara
    að vona að nefndin taki vel utan um þetta mál og skoði það frá öllum
    sjónarhornum. Mig langar í mínu seinna andsvari að spyrja aðeins út í ESA
    og hvað það hefur tekið ESA langan tíma að koma upp á yfirborðið með hvað
    það er ósátt við hvernig Ísland hefur innleitt bókun 35. Ég vil nefna
    orðið tómlæti. Telur þingmaðurinn að tómlæti gæti verið hluti af málsvörn
    Íslands vegna þess að það hafa ekki verið nein vandamál í hátt í 30 ár?
    Árið 2017 gerist eitthvað, <ns:bjalla/> haldið uppi vörnum, árið 2021
    kemur nýr utanríkisráðherra og varnir felldar niður en fram að þessum tíma
    hefur ESA bara verið með tómlæti. <ns:bjalla/> Er þingmaðurinn sammála mér
    í því að þetta sé hlutur sem hægt væri að byggja m.a. málsvörn Íslands
    á?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>