<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T17:54:30" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 17:55:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T17:54:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Eins og ég
    nefndi í fyrra andsvari mínu þá fer þetta mál, að lokinni 1. umræðu, til
    utanríkismálanefndar og ég tel mjög brýnt að þar náist sátt og
    sameiginlegur skilningur í málinu. Það er auðvitað eitthvað stórkostlega
    undarlegt ef við ætlum ekki að fara gaumgæfilega yfir málið, eins og ég
    nefndi í fyrra andsvari mínu, þar sem forsendur hafa breyst. Það er búið
    að stefna Íslandi og málið er nú þegar farið til dómstólsins þannig að mér
    finnst það skipta máli.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ríkisstjórnin vissi líka fyrir löngu síðan hver afstaða ESA var og
    ríkisstjórnin vissi líka að málið gæti farið fyrir EFTA-dómstólinn.
    Reyndar sagði hæstv. utanríkisráðherra sjálf hér á Alþingi í febrúar
    <ns:bjalla/> á þessu ári að ef þingið afgreiddi ekki málið gæti það mjög
    líklega farið til EFTA-dómstólsins. Ég ítreka það að Sjálfstæðisflokkurinn
    styður EES-samninginn <ns:bjalla/> og ég bind vonir við að það náist sátt
    um þetta mál og það verði góð vinna í nefndinni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>