<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T17:56:01" skst="KÞS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 17:58:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T17:56:01">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Guðrúnu
    Hafsteinsdóttur fyrir ræðuna. Það var áhugavert að hlusta á inntakið að
    nokkru leyti og það sem ég staldraði við eftir þá miklu og góðu umræðu sem
    var um þessi mál í sumar var sérstaklega mikilvægi EES-samningsins fyrir
    Ísland og okkar samfélag. Samningurinn skiptir auðvitað gríðarlega miklu
    máli fyrir land og þjóð og við byggjum á því og grunnurinn er, eins og kom
    fram svo sem í ræðu hv. þingmanns, að Alþingi þarf alltaf að eiga síðasta
    orðið og það er alveg hárrétt. Alþingi þarf að eiga síðasta orðið og mun
    hafa síðasta orðið í þeim málum sem við ákveðum að taka inn í okkar rétt
    með þessu eins og hefur verið. En það sem ég staldra aðeins við er hvort
    hv. þingmaður telji æskilegt að landsmenn þurfi sífellt að vera að sækja
    rétt sinn fyrir dómstólum eins og við höfum séð núna að undanförnu þar sem
    fólk þarf að ná niðurstöðu til þess að verja rétt sem er innleiddur með
    ákvæðum EES-samningsins. Ég tel það ekki skynsamlegt fyrir fólkið að þurfa
    að standa sífellt í þessu og mig langaði því að heyra frá hv. þingmanni
    hvort hún telji eðlilegt að fólk standi í málaferlum sífellt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að öðru leyti langar mig líka að spyrja út í, sökum þess að ég
    heyrði hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur nefna það hér í dag, umræðu um
    verðlag og verðbólgu. Það kom fram í ræðu hv. þingmanns að það væri ekki
    gott að koma fram með málið við þessar aðstæður þar sem verðbólga væri
    mikil en þegar Sjálfstæðisflokkurinn lagði þetta mál fram á sínum tíma var
    verðbólga einhvers staðar á bilinu 9–10%. Mig langaði að velta því líka
    upp hver munurinn á því væri, hvort það hefði verið rétti tíminn. Af
    hverju kláraðist málið ekki þá?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>