<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T17:58:32" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:00:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T17:58:32">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Hann spyr
    mig og ræðir um eins og það sé mjög mikið vandamál, málsóknir þar sem fólk
    þarf að leita réttar síns út af bókun 35. Þetta frumvarp leysir ekki þann
    vanda. Þetta frumvarp kemur ekkert í veg fyrir einhver hugsanleg málaferli
    í framtíðinni. Vandamálið er þá oftast vitlaus innleiðing sem þýðir að við
    þurfum að vanda okkur betur við innleiðingar og þurfum að horfa til þess
    að vinna betur hér á Alþingi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En ég vil líka nefna það að í minnisblaði utanríkisráðuneytisins
    segir að líklega myndi ekki reyna oft á ákvæðið í framkvæmd. Það myndi
    ekki reyna oft á ákvæðið í framkvæmd, segir utanríkisráðuneytið sjálft.
    Þetta eru orð ríkisstjórnarinnar og við erum því ekki að ræða hér
    neyðarástand, enda er hér um tiltölulega fátíð tilfelli að ræða, en það
    þýðir samt ekki að við sleppum við að leysa vandann heldur að við höfum
    tök á því að vanda okkur. Það er það sem ég hef sagt hér í dag og ég bind
    vonir við að það verði niðurstaðan í meðferð nefndarinnar þegar hún tekur
    þetta mál upp á sína arma núna á næstu vikum, að hún vandi sig virkilega
    því að vitaskuld skiptir þetta máli. Það skiptir máli að standa vörð um
    samninginn og það ætlum við Sjálfstæðismenn að gera.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>