<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:02:36" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:04:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:02:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Við munum alltaf þurfa að leysa þetta mál. Það er
    nú bara þannig. Afstaða mín og Sjálfstæðisflokksins til EES-samningsins
    hefur ekkert breyst. Samningurinn hefur reynst Íslandi vel og við eigum að
    standa við okkar skuldbindingar sem við höfum tekið á okkur samkvæmt
    honum. En ég vil árétta það sem ég sagði hér í ræðu minni áðan að það að
    gangast undir alþjóðlegt samstarf útilokar aldrei lögfræðilegan ágreining
    um inntak samninga og EFTA-dómstóllinn er bara hluti af þessari
    stofnanaskipan. Það er ekkert óeðlilegt þó að málum sem ágreiningur er um
    sé skotið til hans til þess að fá úrlausn í ágreiningi. Það að bera
    ágreining undir dómstólinn er ekkert að grafa undan samningnum. Það er
    hluti af honum. Þetta er hluti af þeirri samvinnu sem við erum í og við
    eigum að standa við okkar skyldur og það munum við gera. Og aftur árétta
    ég að við Sjálfstæðismenn stöndum fast á því að það er Alþingi Íslendinga
    sem á að eiga síðasta orðið um þau lög sem gilda á Íslandi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>