<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:04:30" skst="DME" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:17:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:04:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mig langar að byrja á því að biðla til
    almennings að hann sjái í gegnum þessa reyksprengju ríkisstjórnarinnar og
    hæstv. utanríkisráðherra sem þetta mál er. Ríkisstjórnarsamstarfið logar
    stafnanna á milli vegna hvers hneykslismálsins á fætur öðru en auðvitað
    aðallega vegna kolsvartrar stöðu í efnahagsmálum landsins. Hv. þm.
    Sigurður Ingi Jóhannsson fór ágætlega yfir þetta í pontu áðan. Auðvitað
    vill ríkisstjórnin frekar að athygli þingheims og almennings beinist að
    hártogunum um flókin lagatæknileg úrlausnarefni í tengslum við
    EES-samninginn, úrlausnarefni sem okkar færustu lögfræðingar ná ekki einu
    sinni saman um, miklu frekar en að ræða hvað þau standa sig herfilega við
    að stýra þessu landi, herfilega við að uppfylla sín helstu kosningaloforð
    um stöðugleika í efnahagsmálum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Og talandi um forgangsmál og athygli þingheims. Þetta mál beinir
    líka athyglinni frá þeirri sjálfsögðu kröfu að Evrópusambandinu verði
    tilkynnt um það formlega að Ísland sé ekki umsóknarríki um aðild að ESB.
    Þetta hefur auðvitað verið öllum ljóst. Við höfum ekki verið listuð sem
    umsóknarríki á vef Evrópusambandsins. Stutt leit á internetinu staðfestir
    þetta fyrir alla sem það kanna. Við sem tökum þátt í alþjóðastarfi á vegum
    Evrópusambandsins fáum gögn og okkur er úthlutað sætum þar sem við erum
    ekki flokkuð sem umsóknarríki, þvert á móti. En af því að ESB blandaði sér
    inn í kosningabaráttuna hérlendis með eftirminnilegum hætti með nýjum
    yfirlýsingum um stöðu Íslands sem umsóknarríki er auðvitað mikilvægt að
    ríkisstjórnin virði vilja meiri hluta þjóðarinnar og gangi frá þessu máli
    með sómasamlegum hætti, eins og reyndar einhverjir hv. stjórnarþingmenn
    hafa lýst yfir stuðningi við, eðlilega. En ríkisstjórnin vill forðast
    umræðu um skyldur sínar í kjölfar taps í þjóðaratkvæðagreiðslunni og
    afvegaleiða umræðuna með þessu máli. Hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir fór
    hér yfir þingsályktunartillögu formanna stjórnarandstöðuflokkanna sem
    leggur ríkisstjórninni lið í þessum efnum. Klárum það mál.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hæstv. utanríkisráðherra kemur síðan hér í pontu og segir þetta
    mál vera lykilmál til þess að standa vörð um EES-samninginn. Nú, lykilmál?
    Forgangsmál? Hvað var hæstv. ráðherra að gera undanfarin tvö ár? Gengst
    hún þá loksins við því að hún hafi ekki verið að passa upp á
    EES-samstarfið? Hún segir hér að þetta sé lykilatriði í þeirri
    hagsmunagæslu en þó hefur hún ekki sett þetta mál á oddinn hér á Alþingi,
    hvorki í þinglokasamningum né í öðrum störfum. Það er auðvelt að hrekja
    þessi orð hennar. Þetta hefur verið algjör afgangsstærð en núna eigum við
    að kaupa það að EES-samningurinn standi og falli með þessu frumvarpi
    hennar. Almenningur hefur séð það að þessi meiri hluti beitir öllum
    brögðum til að ná í gegn sínum forgangsmálum. Það hefur ekki vantað hjá
    þessari ríkisstjórn. Að bera fyrir sig stjórnarandstöðu í þeim efnum er
    hjákátlegt. Þetta mál hefur einfaldlega ekki verið nógu ofarlega á blaði
    hjá ríkisstjórninni, ekki fyrr en núna. Og ég verð að segja að það var
    miður að hlusta á tóninn sem var sleginn eftir tap ríkisstjórnarinnar í
    baráttu hennar fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið þar sem þetta mál
    var dregið fram í því samhengi korteri eftir að úrslitin urðu ljós. Ég
    veit að fleiri upplifðu þennan tón.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En hér erum við komin saman og ræðum frumvarp hæstv.
    utanríkisráðherra um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið,
    svokallað mál um bókun 35, af því að eins og hv. þm. Guðrún
    Hafsteinsdóttir fór hér yfir þá er það ríkisstjórnin og
    stjórnarmeirihlutinn sem hafa dagskrárvaldið í þessum þingsal. Bókun 35
    hefur reyndar verið hluti af EES-samningnum og þar með íslenskum lögum
    allt frá samþykkt hans 1993. Ég hef orðið vör við það að jafnvel hv.
    stjórnarþingmenn skilja ekki grundvallaratriði þessa máls, þekkja ekki
    sögu og forsendur bókunar 35. Það dæmist mögulega á hv. utanríkismálanefnd
    að fræða hv. stjórnarþingmenn betur um þetta fyrst framkvæmdarvaldið
    stendur sig ekki í upplýsingagjöf. Upplýsingagjöf eða áróður vafðist
    reyndar ekki fyrir þeim í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, þá var
    öllu tjaldað til.</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/lagas/157c/1993002.html-->

    <ns:mgr>Í stuttu máli var það svo að EFTA-ríkin féllust ekki á það í
    samningaviðræðum um EES-samninginn að taka upp forgangsregluna sem gildir
    innan ESB, þá EB. Með bókun 35 sem var lögfest hér þá þegar 1993
    skuldbundum við okkur til að, ef þörf væri á, lögfesta túlkunarreglu þess
    efnis að ef það kæmi upp misræmi milli EES-reglna sem hefðu verið
    lögfestar og annarra ákvæða í lögum, þá gildi EES-reglur í því tilviki.
    Þetta samþykktum við árið 1993. Um það er enginn ágreiningur. Í 3. gr.
    íslenskra laga um EES-samninginn segir orðrétt, með leyfi forseta: „Skýra
    skal lög og reglur, að svo miklu leyti sem við á, til samræmis við
    EES-samninginn og þær reglur sem á honum byggja.“ Svona gekk þetta
    áratugum saman og EES-samningurinn hefur virkað vel, þessi mikilvægasti
    viðskiptasamningur okkar. En það hafa sannarlega komið upp einhverjir
    hnökrar og áskoranir og það er ekki síður verkefni stjórnvalda á hverjum
    tíma að mæta þeim áskorunum. Ég frábið mér málflutning um að það að við
    nýtum okkur verkfæri okkar í EES-samningnum eða tökumst á um túlkun hans
    og framkvæmd sé einhvers konar aðför að samningnum, að hæstv.
    utanríkisráðherra og hv. stjórnarþingmenn komi hér í pontu og tali um
    EFTA-dómstólinn og dómarana þar sem einhvers konar erlent afl sem eigi
    ekki að taka ákvarðanir fyrir Ísland og ali þannig á tortryggni í garð
    EFTA-dómstólsins. Og af því að ég hef áhyggjur af þekkingu hv.
    stjórnarþingmanna á framkvæmd EES-samningsins get ég upplýst um það að
    málarekstur fyrir EFTA-dómstólnum sem tengist Íslandi telur tugi mála.
    Ekki það að við erum auðvitað orðin alvön því að hlusta á þetta sama fólk
    tala niður EES-samninginn. Þetta sama fólk hefur eytt öllum sínum tíma
    orku og miklum fjármunum íslenskra skattgreiðenda undanfarna mánuði í
    vegferð sem gekk út á það að segja upp EES-samningnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla líka að hafna því algjörlega að sitja undir umvöndunum
    ESB-sinna, hv. stjórnarþingmanna og hæstv. ráðherra um skilgreiningu á því
    hvernig við stöndum vörð um EES-samninginn. Fyrir mitt leyti verð ég að
    viðurkenna að ég vantreysti ríkisstjórninni í þeim efnum. Ég vantreysti
    líka hv. stjórnarþingmönnum sem framleiddu myndbönd og greinar í tugatali
    í sumar þar sem þeir töluðu niður EES-samninginn. Ég gæti t.d. nefnt orð
    hæstv. ráðherra Hönnu Katrínar Friðriksson sem eitt dæmi af mörgum þar sem
    hún sagði orðrétt í þættinum Vikulokin, með leyfi forseta: „Við erum
    áhrifalaus innan EES-samningsins.“ Eigum við sem höfum barist fyrir bættri
    framkvæmd og fyrir hagsmunagæslu okkar í EES, bæði á vettvangi
    framkvæmdarvaldsins og ekki síður hér á vettvangi þingsins, að sitja undir
    umvöndunum þessa fólks sem tekur sér síðan allt í einu stöðu æðstu presta,
    riddara EES-samningsins? Mér finnst það satt best að segja ekki mjög
    sannfærandi, virðulegi forseti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég var búin að nefna áskoranir í tengslum við EES-samninginn.
    Þetta eru jú ekki allt saman regnbogar og rósir í þessu samstarfi okkar.
    Ég verð að taka undir gagnrýni hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar og segja
    að það væri óskandi að ríkisstjórnin hefði meiri áhuga á því að
    Evrópusambandið stæði við EES-samninginn, bryti ekki á okkur í samstarfinu
    með ólögmætum hætti. Það væri betri bragur á því eins og einhver sagði.
    Það verður heldur ekki hjá því komist að ræða þá stöðu sem upp er komin og
    var ekki áður, þetta er ný staða, sem er sú að mál hefur verið höfðað sem
    tengist þessu máli fyrir EFTA-dómstólnum. Einhverjir hafa bent á að
    tímasetningin sé furðuleg og auðvitað er það fyrir neðan allar hellur sem
    einhverjir hafa haldið fram að málið hafi beðið meðan við afgreiddum hér
    ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar og þjóðaratkvæðagreiðslu. Annaðhvort
    skiptir þetta mál höfuðmáli fyrir EES-samninginn eða ekki. Brussel-brölt
    ríkisstjórnarinnar breytir auðvitað engu þar um. En staðan er sannarlega
    breytt nú þegar málið hefur verið höfðað og ég tel að það sé meðal þess
    sem við þurfum að ræða vel og vandlega í utanríkismálanefnd. Um það hefur
    hæstv. ráðherra Eyjólfur Ármannsson m.a. sagt, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/altext/raeda/157/rad20250925T103400.html-->

    <ns:mgr>„Ég hef verið þeirrar skoðunar að EFTA-dómstóllinn ætti að útkljá
    í samningsbrotamáli ágreining um hvort 3. gr. EES-laganna væri
    fullnægjandi fyrir Ísland til að tryggja einsleitni reglna á EES-svæðinu.
    “</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er mikilvægt innlegg frá hæstv. ráðherra og sýnir að það er
    ekki full samstaða innan ríkisstjórnarinnar um það hvaða leið er best að
    fara í þessu máli og ekki bara í ríkisstjórninni. Þessi umræða er orðin
    mjög hávær í íslensku samfélagi. Þessi ríkisstjórn hefur sannarlega vísað
    til kannana og viðhorfs ungs fólks þegar það hefur hentað, ekki síst til
    stuðnings ESB-vegferð sem þó blessunarlega varð ekki ofan á. Kannanir á
    viðhorfi almennings sýna svo ekki verður um villst að það eru mjög skiptar
    skoðanir um afgreiðslu þessa máls. Þessi ríkisstjórn og hv.
    stjórnarþingmenn hafa líka notað það sem rök að það sé mikilvægt að við
    skerum úr um ákveðin mál, kíkjum í ákveðna pakka til að mál hangi ekki
    áfram yfir okkur svo þjóðin sé nú ekki föst í þrætum. Það er ákveðið
    sjónarmið í þessu máli nú þegar málið hefur verið höfðað fyrir
    EFTA-dómstólnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mín afstaða er þessi og hún hefur ekki breyst: Ég er
    stuðningsmaður EES-samstarfsins og ég hef unnið ötullega að hagsmunum
    okkar þar og vernd samningsins í mínum störfum. Það er mikilvægt fyrir
    Ísland að EES-samningurinn virki en það er ekki síður mikilvægt að það sé
    almenn og breið samstaða um samninginn hér á landi. Við getum ekki lokað
    augunum fyrir ágreiningi sem hefur risið vegna þessa máls, ekki bara í
    almennri umræðu heldur ekki síður meðal virtra fræðimanna sem greinir á um
    þá leið sem við eigum að fara í þessu máli. Þetta mál hefur verið sett á
    dagskrá af ríkisstjórninni og er því á leið til hv. utanríkismálanefndar
    hvar ég sit. Mín skoðun er sú að þar eigum við að skoða málið vel og
    vandlega og í rólegheitunum, ekki síst í ljósi þeirrar nýju stöðu sem upp
    er komin varðandi málshöfðun á hendur Íslandi. Eftir tveggja ára
    aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar er ekkert sem knýr á um hamagang í þessu
    máli. Á meðan hvet ég þingheim og almenning til að setja í forgang
    alvarlega stöðu í efnahagsmálum landsins undir forystu þessarar
    ríkisstjórnar. Ekki falla fyrir reyksprengjum ríkisstjórnarinnar.
    Efnahagsmálin eru algjört forgangsmál. Við getum ekki sætt okkur við
    aðgerðaleysi eða rangar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar í þeim málum í tvö
    ár í viðbót.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>