<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:17:54" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:19:29 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:17:54">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir
    afar góða ræðu. Mig langaði að spyrja hv. þingmann út í orð hennar um
    tímasetninguna á þessu frumvarpi og kannski, ef ég skil hana rétt, að
    verið sé að fela raunverulegan vanda og ekki verið að setja á dagskrá mál
    sem taka á efnahagsvanda landsins. Það er augljóst að þau eru ekki hér á
    dagskrá meðan við ræðum þetta mál. En mig langaði til að spyrja hv.
    þingmann: Getur verið að hennar mati að málið snúist líka um það að
    ríkisstjórnarflokkarnir séu ekki búnir að jafna sig á niðurstöðu
    kosninganna hér í lok ágúst og séu þess vegna að leggja þetta mál fram
    þrátt fyrir, eins og hv. þingmaður benti á, að hæstv. ráðherra Hanna
    Katrín Friðriksson hafi sagt að við værum, hvað var það, valdalaus?
    <ns:frammíkall skst="DME">Áhrifalaus.</ns:frammíkall> Áhrifalaus. Væri þá
    ekki einmitt nær að láta reyna á það fyrir dómstólum hver staða Íslands sé
    þegar kemur að EES-samningnum? Ég segi bara eins og margir hv. þingmenn
    meiri hlutans sögðu í sumar: Við hvað eruð þið hrædd? Ég spyr því hv. þm.
    Diljá Mist Einarsdóttur: Hvað heldur hún að þau séu hrædd við?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>