<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:19:41" skst="DME" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:21:26 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:19:41">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að maður getur ekki leynt
    því hvað maður hefur gaman af því að nota setningar sem voru notaðar bara
    nýlega í sumar í annars konar samhengi akkúrat í þessu máli. En varðandi
    tímasetninguna þá velti ég því upp, af því að þessi ríkisstjórn er þekkt
    fyrir svona brellur og hefur auðvitað verið að glíma við hvert
    hneykslismálið á fætur öðru og er þekkt fyrir að henda inn svona
    reyksprengjum til að afvegaleiða umræðuna, að þetta hefur ekki verið meira
    forgangsmál en svo að það hefur ekki verið klárað, ekki raunverulega sett
    á dagskrá eða í forgang hér í þinginu síðastliðin tvö ár og við vitum að
    það sem ríkisstjórnin vill koma í gegn kemur hún í gegn með góðu eða illu.
    Og varðandi tóninn, hvort ég telji að þetta mál tengist því að
    ríkisstjórnin hafi hreinlega ekki jafnað sig á tapinu í tengslum við
    þjóðaratkvæðagreiðsluna, þá endurtek ég bara það sem ég sagði í ræðu
    minni. Mér þótti miður að korteri eftir niðurstöðu þeirrar
    atkvæðagreiðslu, þegar ljóst var að ríkisstjórnin hefði tapað í þessari
    vegferð sinni, hafi þessi tónn verið sleginn og þetta mál hafi verið
    dregið upp í því samhengi. Mér þótti það mjög miður og ég veit að fleiri
    upplifðu þau skilaboð þannig.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi ummæli hæstv. ráðherra sem ég fór yfir í ræðu minni þá
    eru þau bara ein af fjölmörgum sem eldast alveg gríðarlega illa. Það var
    ekki bara hæstv. atvinnuvegaráðherra sem talaði svona grimmilega niður
    EES-samninginn og þarf einhvern veginn að súpa seyðið af því að þetta er
    og verður áfram okkar mikilvægasti viðskiptasamningur. Um dómstólaleiðina
    endurtek ég bara það sem ég sagði í ræðu minni, mér finnst það gríðarlega
    mikilvægt að við leggjumst vel og vandlega yfir það í utanríkismálanefnd
    því að þetta er alveg ný og breytt staða og við hljótum að þurfa að
    leggjast yfir hana.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>