<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:21:34" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:23:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:21:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Mig langar áfram að
    ræða tímasetningu þessa frumvarps, að það sé komið inn á Alþingi núna. Mig
    langar að velta því upp að það er svo ótrúleg staða að hæstv. ráðherrar og
    ríkisstjórnin velji að eyða tíma þingsins í þetta mál þegar allt logar
    stafnanna á milli hérna úti í efnahagsmálum. En hver er staðan? Það
    virðist vera þannig að þau séu svo ráðalaus að ef þetta mál væri ekki
    hérna, sem þau vita að mun taka mikinn tíma og mikla umræðu — ég óttast að
    þau séu ekki með nein góð mál tilbúin. Þau eru hreinlega að eyða tíma
    þingsins vegna þess að önnur mál eru ekki tilbúin. Ég get samt bent á það
    að þingmannamál, alla vega hjá minni hlutanum, sem bíða eftir að komast á
    dagskrá skipta tugum. Þar er fullt af góðum málum sem myndu hjálpa til við
    að taka á efnahagsmálum landsins. Þeim er ekki hleypt á dagskrá.
    Ríkisstjórnin hefur engin mál til að setja á dagskrá og ákveður þess vegna
    að koma með þetta mál enn eina ferðina, að því er virðist í einhverjum
    tapsærindum eftir sumarið. Seinni spurningin mín er hreinlega: Er þetta
    ekki bara komið hingað inn af því að ríkisstjórnin er algerlega ráðalaus
    þegar hún þarf sjálf að taka á málum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>