<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:23:27" skst="DME" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:24:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:23:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og tek
    undir það að þessi tímasetning er furðuleg með tilliti til margs. Ég fór
    ágætlega yfir það í ræðu minni hér áðan og get tekið undir athugasemdir
    hv. þingmanns. Þessi ríkisstjórn er þekkt fyrir að vera
    markaðsbrellustjórn. En mig langar að ítreka það sem ég sagði áðan í ræðu
    minni og biðla til almennings að láta ekki blekkjast, hafa áfram augun á
    boltanum. Við verðum að einbeita okkur að efnahagsmálunum og við verðum að
    gera kröfu til ríkisstjórnarinnar og þessa stjórnarmeirihluta um að setja
    þau mál á oddinn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi það sem við höfum auðvitað séð og blasir við á dagskrá
    þingsins þá tek ég sömuleiðis undir að það eru fá, ef nokkur, mál
    greinilega tilbúin af hálfu stjórnarmeirihlutans. Þá er auðvitað
    gráupplagt að draga fram einhver af fjölmörgum góðum þingmálum frá
    stjórnarandstöðunni og setja á dagskrá. Við vitum að það er sama hvaðan
    gott kemur. Ég hef nú hrósað ríkisstjórninni ítrekað fyrir að vera
    innblásin af mínum verkum þannig að ég vonast til að við fáum að sjá
    nokkur góð þingmannamál á dagskrá.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er auðvitað 1. umræða þessa máls og gengur bara samkvæmt
    þingsköpum og hún verður ekkert lengri en hún þarf að vera. Þegar málið
    gengur til hv. utanríkismálanefndar ættum við að hafa góðan og rúman tíma
    í þinginu til að einbeita okkur að málum sem sannarlega eru forgangsmál í
    íslensku samfélagi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>