<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:25:04" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:27:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:25:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir
    ágæta ræðu sem fór um víðan völl. Við vitum að við eigum áhugavert sumar
    að baki þar sem íslenskur almenningur fékk það í fangið að taka stóra
    ákvörðun. Sú ákvörðun var tekin og við ætlum að virða hana og eina leiðin
    er áfram. Ég hef engan áhuga á því að karpa hér um það hvort það hafi
    verið rétt eða röng ákvörðun vegna þess að í lok dags, og þegar upp er
    staðið, var það rétt ákvörðun vegna þess að íslenska þjóðin tók hana,
    hvort sem mér þótti það skynsamlegt og æskilegt ferli að fara af stað í að
    sækja um aðild að Evrópusambandinu eða ekki. Það mál er frá, þessi
    ríkisstjórn mun ekki sækja um aðild að Evrópusambandinu. Ég er talskona
    þess að draga línu í sandinn. Mér finnst það hafa verið gert en það er
    samt staðreynd að um það var hvorki rætt né spurt hvort draga ætti
    umsóknina formlega til baka. Það var ekki hluti af þeirri þingsályktun sem
    samþykkt var í vor og leiðbeiningar landskjörstjórnar eru til vitnis um
    það að ástandið er óbreytt. En við getum kannski geymt þá umræðu þar til
    síðar þegar tekist verður á um fyrirliggjandi þingsályktunartillögu sumra
    stjórnarandstöðuþingmanna um formlega afturköllun, en ég ætla ekki að
    verja tíma mínum hér í það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil spyrja hv. þingmann: Hér eru nefnd atriði sem varða það að
    við ætlum að nýta heimildir okkar innan EES til að stunda hér málsvörn
    fyrir Ísland í hagsmunagæslu. Ég væri til í að fá nánari upplýsingar um
    það hvað hv. þingmaður á við með því vegna þess að hagsmunagæslan er stóra
    verkefnið okkar en ekki bókun 35. Hér er talað um gerbreytta stöðu. Var
    það ekki fyrirséð af hálfu Sjálfstæðisflokksins að það gæti orðið
    afleiðingin að hér yrði höfðað samningsbrotamál af hálfu ESA? <ns:bjalla/>
    Hvernig er staðan svona gerbreytt og hvað væri unnið með því að fara í
    dómsmál í stað þess að leysa þetta hér?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>