<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:27:34" skst="DME" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:29:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:27:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hv.
    þingmaður talar um að við eigum að virða ákvörðun meiri hluta þjóðarinnar.
    Þá spyr ég út í afturköllunina því að ég tel að ekki sé farið að vilja
    meiri hluta þjóðarinnar með því að þessi punktur sé ekki settur sem vantar
    fyrir aftan þennan leiðangur. Og varðandi það að ekki hafi verið spurt
    sérstaklega út í afturköllunina — nei, þetta var líka bara glæný
    yfirlýsing og afstaða sem kom hér fram nokkrum vikum fyrir
    þjóðaratkvæðagreiðsluna; dúkkaði upp frá fyrirsvarsmanni innan
    Evrópusambandsins, hefur enga stoð, hvorki í opinberum gögnum né, eins og
    ég benti á í ræðu minni, í alþjóðasamstarfi sem við tökum þátt í og þannig
    mætti lengi telja. Það þarf því að ganga frá þessum málum með sómasamlegum
    hætti og reyndar hafa einhverjir hv. stjórnarþingmenn tekið undir þá
    skoðun mína. Einhverjir stjórnarþingmenn hafa hins vegar haldið því fram,
    og gott ef ekki líka hæstv. utanríkisráðherra, að túlka beri niðurstöður
    þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem svo að við ættum að drífa í þessu máli,
    bókun 35. Það var heldur ekki spurt um það. Það er því bara tínt til það
    sem hentar hverju sinni og maður er orðinn alvanur því með þennan
    stjórnarmeirihluta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég skildi ekki alveg spurningu hv. þingmanns varðandi
    hagsmunagæsluna og bið hana kannski um að skýra hana betur í síðara
    andsvari. Varðandi það hvort staðan sé gerbreytt — já, staðan er
    gerbreytt. Og hv. þingmaður spyr hvort þetta hafi ekki verið fyrirséð. Ég
    spyr. Ég var nú aðstoðarmaður hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þegar hann
    var utanríkisráðherra og tók til varna í þessu máli í
    utanríkisráðuneytinu. Ég myndi ekki segja að neitt hafi verið fyrirséð í
    þeim efnum. Það er alvanalegt að bréf berist frá Eftirlitsstofnun EFTA til
    stjórnvalda og þeim sé svarað og það er allur gangur á því hvernig þeim
    málum lyktar. Staðan er sú að mál hefur verið höfðað og auðvitað er málið
    og staðan þá gjörbreytt. Varðandi það orðalag sem ég hef heyrt hér ítrekað
    í dag, um að við eigum að leysa málin sjálf, þá er verið að afvegaleiða
    fólk. Ég vek athygli á þessu. Ísland mun alltaf þurfa að leysa úr þessum
    málum sjálft, alveg sama hvort við gerum það núna eða í kjölfar dóms
    EFTA-dómstólsins.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>