<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:29:58" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:32:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:29:58">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Við verðum
    að leysa þetta mál sjálf og eigum að gera það. Það er meiri bragur á því
    að gera það hér í þessum þingsal en að vera gerð afturreka frá Lúxemborg,
    frá EFTA-dómstólnum sem ég ber fullt traust til í alla staði. Þetta mál er
    einstakt. Það snýst ekki um einstaka réttarhagsmuni í tilteknu máli. Þetta
    snýst um það hvort það gildi hér einsleitni og það gildi einhver
    fyrirsjáanleiki um fjórfrelsið á Íslandi. Ég held að það sé bara óboðleg
    staða, óboðleg staða og óverjandi að halda því fram að það sé í boði fyrir
    okkur sem öflugan og ábyrgan þátttakanda á Evrópska efnahagssvæðinu að
    hafa hér annað réttarumhverfi hvað varðar 3. gr. EES-samningsins en t.d.
    gildir í Noregi. Ég hef ekki heyrt rök þess efnis að það sé hægt að una
    við óbreytt ástand og ég faktískt veit ekki, forseti, hvað þarf að
    leggjast svona gaumgæfilega og vel yfir í utanríkismálanefnd. Við höfum
    unnið vel og ítarlega í þessu máli alla vega í þau tvö eða þrjú skipti sem
    við höfum tekið þetta mál fyrir á þessu kjörtímabili. Ég efa ekki heldur
    að Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagst ansi vel yfir málið þegar málið var
    lagt fram í tíð fyrri ríkisstjórnar árið 2023. Þetta mál er runnið undan
    rifjum þeirra. Mér finnst bara ótrúlegt að ætla að blanda þessu tvennu
    saman, stöðu umsóknar, sem ég ætla ekki að gera lítið úr að skipti kannski
    einhverju máli, og þessu máli. En þetta snýst um EES-samninginn og getur
    komið í veg fyrir öfluga hagsmunagæslu af okkar hálfu. Þetta hangir yfir
    okkur eins og mara og hv. þingmaður veit það. Hún veit að við þurfum að
    nýta allar okkar innkomur, formlegar sem óformlegar, við hagsmunagæslu
    Íslands. Þar gildir að segja: Já, við stöndum við skyldur okkar en njótum
    ekki bara réttindanna. Og fyrst við erum að tala um frasa sem voru látnir
    falla hér í sumar, og þeir voru misgóðir á báða vegu, þá tek ég mér orð
    hv. þingmanns í munn og geri þau að mínum: Eigum við ekki að fá frið fyrir
    því að karpa um Evrópusambandið? <ns:bjalla/> Það er enginn hér að tala um
    Evrópusambandið nema Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn og hugsanlega
    Framsóknarflokkurinn. Ég vil tala um Evrópska efnahagssvæðið. Ég vil tala
    um EES-samninginn. Eina leiðin er áfram. <ns:bjalla/> Við eigum að standa
    vörð um okkar hagsmunagæslu og það gerir enginn nema Ísland
    sjálft.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>