<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:32:30" skst="DME" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:34:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:32:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið.
    Blessunarlega lúta ESB-sinnar hér höfði og tala ekki lengur hátt um
    Evrópusambandið af því að það er búið að þagga niður í þeim, a.m.k.
    tímabundið. En talandi um að mál hangi yfir okkur eins og mara. Þetta er
    einmitt notað þegar það hentar. Einhver myndi segja að það hangi yfir
    okkur eins og mara að hér hafi stigið fram fyrirsvarsmaður frá
    Evrópusambandinu og lýst því yfir algjörlega óvænt að við værum
    umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu, sem á sér enga stoð í neinum
    gögnum, ekki neinu verklagi og ekki í neinni framkvæmd. Ég er þeirrar
    skoðunar að ég sé ekki að blanda neinu saman heldur sé ég einfaldlega að
    benda á hvað ætti að vera forgangsmál hjá þingheimi hverju sinni. Númer
    eitt, tvö og þrjú eru það efnahagsmálin. Ef við ætlum að setja eitthvert
    utanríkismál sérstaklega á dagskrá hér þá ætti það að vera það að setja
    punkt aftan við þá sneypuför meiri hlutans að reyna að draga Ísland inn í
    Evrópusambandið. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Meiri bragur á því að gera þetta sjálf — vá, þetta er eins og
    talað út úr mínum munni hér fyrr í sumar. <ns:frammíkall skst="DagH">Enda
    erum við sammála.</ns:frammíkall> Almennt er ég bara mjög sammála því að
    það sé meiri bragur á því að við gerum hlutina sjálf. Ég keyrði heila
    kosningabaráttu á því í sumar og við unnum. En ég er þeirrar skoðunar að
    við þurfum sannarlega að skoða þessa nýju og breyttu stöðu í
    utanríkismálanefnd af því að hún er það, þetta er mjög breytt staða. Þegar
    hv. þingmaður spyr hvort við höfum ekki grandskoðað þetta mál í
    utanríkisráðuneytinu, undir forystu hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þá
    er svarið: Jú, við lögðumst yfir þetta mál, við grandskoðuðum það og við
    tókum til varna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>