<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:34:27" skst="KÞS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:43:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:34:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Við ræðum hér mikilvægt mál, bókun 35. Þetta
    er auðvitað töluvert stórt mál, stórt og mikilvægt mál, sem felur það í
    sér að tryggja fullnægjandi innleiðingu bókunar 35 við samninginn um
    Evrópska efnahagssvæðið. Það hefur verið deilt um það á undanförnum
    misserum hvort bókunin hafi verið innleidd á réttan hátt á sínum tíma. En
    um hvað snýst málið í raun og veru? Mig langaði að byrja á því að koma
    aðeins inn á það hvað málið snýst um. Þetta snertir, eins og kemur fram í
    greinargerð málsins, auðvitað að miklu leyti með hvaða hætti lagaákvæði
    sem komin eru til vegna EES-samningsins eru innleidd og samþykkt hér á
    Alþingi og hvernig skuli vinna með þau í kjölfarið. Ef tvenn lög fjalla um
    sama þáttinn ber að horfa til þeirrar túlkunar sem EES-gerðin fjallar um.
    Þetta hefur á undanförnum misserum í flestum tilvikum snert réttindi
    einstaklinga eins og rakið er í greinargerðinni, t.d. réttindi hvað varðar
    fæðingarorlof og ávinnslu þegar fólk starfar innan EES-svæðisins. Vegna
    innleiðingarinnar á sínum tíma þá hefur það ekki verið túlkað með réttum
    hætti hvernig á að fylgja því hver ávinnsla réttinda er. Það er auðvitað
    gríðarlega mikilvægt að það sé á hreinu með hvaða hætti þetta er. Það er
    auðvitað þannig, eins og hefur ansi oft komið fram hér, að það er okkar
    hér á Alþingi að standa vörð um EES-samninginn. Það er hlutverk okkar
    alþingismanna að tryggja rétta innleiðingu mála sem koma hér inn í gegnum
    EES-samninginn og að tryggja að réttindi fólks séu tryggð með samningnum.
    Viljum við, eins og kom fram í umræðum og andsvörum hér áðan, að fólk
    þurfi sífellt að sækja rétt sinn fyrir dómstólum? Auðvitað getur slík
    staða alveg komið upp, það er ekkert fráleitt að það gerist. En við eigum
    auðvitað að standa vörð um það að vinna málin með réttum hætti þannig að
    staða fólks sé tryggð og þetta verði gert með skýrum hætti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Með bókun 35 og réttri innleiðingu þá erum við að standa vörð um
    EES-samninginn og styrkja stoðir hans. Það er síðan gríðarlega mikilvægt,
    þegar Alþingi fjallar um mál og samþykkir, að við gerum það á þann hátt að
    það sé skýrt. Ef við teljum mikilvægt að einhver frávik séu frá þeim
    gerðum þarf það að vera skýrt hver þingvilji er á hverjum tíma, við eigum
    ekki að láta það gerast af sjálfu sér. Við höfum séð á undanförnum árum
    hvernig dómaframkvæmd hefur verið að þróast og það hefur því miður bitnað
    á fólkinu sem er ekki ásættanlegt að mínu mati. Ég tel, líkt og hefur
    verið sagt í umræðunni hér í dag, æskilegt að við bregðumst við af því að,
    jú, við getum gert þetta sjálf. Það er okkar hlutverk að gera þær
    breytingar á lögum þannig að staðan sé skýr og lög séu skilvirk og
    framkvæmdin sem hnökralausust í stað þess að fara einhverjar
    dómstólaleiðir með slíkt. Ég tel að það sé skynsamlegt fyrir okkur að
    finna og leysa málin sjálf hvað þetta varðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég heyrði í ræðu hér í dag hjá hv. þm. Nönnu Margréti
    Gunnlaugsdóttur að kerfið eigi að þjóna fólkinu, og nú er ég ekki að vitna
    alveg orðrétt af því að ég skrifaði það ekki nákvæmlega niður, og fólk
    eigi að geta treyst lögum sem Alþingi setur á Íslandi. Já, það er
    nákvæmlega málið, fólk á að geta treyst þeim lögum sem við setjum hér og
    að þau lög tali til þeirra skuldbindinga sem við höfum undirgengist. Fólk
    á að geta treyst því að lög séu skýr og að ákvæði séu innleidd í okkar lög
    með skýrum hætti. Við viljum ekki að fólk þurfi að fara fyrir dómstóla og
    þess vegna er mikilvægt að við skýrum lagaákvæði með þeim hætti að þau séu
    innleidd á réttan hátt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég hef ekki heyrt einhver rök hér í dag sem
    hafa snúið þessu við. Við höfum séð á undanförnum árum — þetta mál kemur
    fyrst fram frá annarri ríkisstjórn en nú er við völd. Það var 2023, ef ég
    man rétt, sem málið kom fyrst fram undir leiðsögn hæstv. ráðherra Þórdísar
    Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, fyrrverandi þingmanns
    Sjálfstæðisflokksins, og þá væntanlega með stuðningi Sjálfstæðisflokksins.
    Maður veltir því fyrir sér í dag af hverju þessi sinnaskipti hafa orðið
    hjá flokknum hvað þetta varðar. En ég tel bara gríðarlega mikilvægt að við
    styðjum og styrkjum EES-samninginn sem er, eins og æðioft kom fram í
    sumar, einn mikilvægasti viðskiptasamningur sem Ísland hefur gert og við
    eigum ekki að taka einhverja sénsa eða hafa einhverja óvissu með þennan
    samning eins og hann er. Hann skiptir máli fyrir fólkið. Hann skiptir
    gríðarlega miklu máli fyrir samfélagið. Ég tel því afar mikilvægt að við
    vinnum þetta mál hér áfram. Það hefur nú þegar fengið mjög ítarlega og
    góða umfjöllun hér að undanförnu, á síðustu tveimur þingum og það styður
    auðvitað við málið á þessum tíma. Ég sé ekkert því að vanbúnaði að málið
    komi hingað inn og að hægt sé að keyra það tiltölulega hratt í gegnum
    þingið hjá okkur enda gríðarlega mikilvægt mál. Þetta er eitthvað sem við
    þurfum að koma áfram og klára og ég tel gríðarlega mikilvægt að þeir
    stjórnmálaflokkar sem eru hér á Alþingi taki nú höndum saman og klári
    málið á ásættanlegan og skynsamlegan hátt, enda skiptir þetta fólkið
    gríðarlegu máli. Ég treysti því að þeir flokkar sem þó hafa verið í fyrri
    ríkisstjórnum, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, fylki sér á bak
    við þetta mál en mér þykir sorglegt að sjá að Sjálfstæðisflokkurinn
    virðist ekki alveg vera þar, því miður. Þau virðast ætla að elta stóra
    bróður sinn, Miðflokkinn, hvað þetta varðar en ég treysti því að þau muni
    styðja við málið og klára þetta alla leið á skynsamlegan hátt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>