<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:43:29" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:45:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:43:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu. Ég er
    aðeins að reyna að átta mig samt á málflutningi hv. þingmanns og
    stjórnarliða. Nú er það þannig, eins og fram hefur komið, að hv. þingmenn
    tala svolítið um að ESA muni fara í aðgerðir. Þessi ríkisstjórn vissi
    alveg af því fyrir löngu. Hún gerði ekkert í því og þessi ríkisstjórn, sem
    allt í einu er ofsalega mikil EES-stjórn, vildi að Ísland færi út úr EES.
    <ns:frammíkall>Hættu nú alveg. </ns:frammíkall></ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Þessi ríkisstjórn barðist fyrir því með oddi og
    egg, af öllum krafti, að koma Íslandi út úr EES. <ns:frammíkall>ESB er
    EES.</ns:frammíkall></ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er áhugavert að heyra gólið í háttvirtum
    stjórnarliðum en þetta gól meikar engan sens, svo að maður tali nú bara
    góða íslensku, með leyfi forseta. Þessi ríkisstjórn eyddi hundruðum
    milljóna ef ekki milljörðum og gerði allt hvað hún gat til að koma Íslandi
    út úr EES. Þessi ríkisstjórn vissi af því að ef hún myndi ekki klára
    málið, ef marka má yfirlýsingar þeirra sem eru í ESA, fyrir ákveðinn
    tímapunkt þá myndi þessi staða koma upp sem ríkisstjórnin hefur áhyggjur
    af núna. Af hverju eru þessi sinnaskipti? Hvenær varð Samfylkingin
    EES-flokkur? Því að Samfylkingin var ekki alveg stofnuð utan um ESB, en
    mjög fljótlega eftir að hún var stofnuð vildi hún ganga í ESB og þar af
    leiðandi út úr EES. Hún sagði fyrir kosningar: Heyrðu, ekki hafa áhyggjur
    af því, við setjum ESB-málin ekki á dagskrá, en um leið og hún komst í
    færi gerði hún það til að koma okkur út úr EES og fara í ESB. <ns:bjalla/>
    Sömuleiðis vissi hún af því að þessi staða kæmi upp ef hún myndi ekki
    klára málið 2026, þ.e. þetta mál sem hér er. Af hverju eru þessi
    sinnaskipti?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>