<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:46:03" skst="KÞS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:48:03 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:46:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Guðlaugi
    Þór Þórðarsyni fyrir andsvarið. Það er áhugavert að eiga samskipti við
    hann hér. Ég held að það sé mikilvægt og ég velti því fyrir mér: Af hverju
    viljum við ekki bara standa við skuldbindingar okkar í þessum efnum?
    EES-samningurinn er, eins og hefur svo oft komið fram og sérstaklega í
    sumar, samningur sem skiptir okkur gríðarlega miklu máli sem samfélag og
    er bara samningur sem við þurfum að standa vörð um. Þetta er samningur sem
    veitir okkur inngöngu inn á svæði Evrópusambandsins. Það mætti eiginlega
    segja að við séum í ákveðnu fordyri þar með þessu og að sjálfsögðu skiptir
    þessi samningur máli. Þetta er gríðarlega verðmætur samningur og ég átta
    mig eiginlega ekki á því hvaðan hv. þingmaður kemur eða hvert hann er að
    fara þegar hann talar á þennan hátt, talandi um að skipta um skoðun í
    þessum efnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það eru fáir flokkar, held ég, sem hafa talað jafn mikið fyrir
    samstarfi á Evrópugrunni og Samfylkingin. Við erum Evrópuflokkur. Við erum
    flokkur sem vill samstarf á evrópskum vettvangi en það er í raun og veru
    einn flokkur sem hefur skipt um skoðun hérna. Það er aðeins einn flokkur
    sem hefur skipt um skoðun og það er Sjálfstæðisflokkurinn sem ætlar ekki
    að standa við þær skuldbindingar sem okkur ber og hræðist einhverra hluta
    vegna núna að vinna með þetta mál, mál sem þau lögðu fram á sínum tíma. Ég
    botna ekki í því af hverju þessi sinnaskipti hafa orðið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>