<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:48:09" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:49:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:48:09">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég var að spyrja hv. þingmann spurninga og fékk
    engin svör. Ég spurði hv. þingmann og ég hvet hann, ef hann skilur ekki
    muninn á EES og ESB, til að hlusta á ræðu hv. þm. Dagbjartar Hákonardóttur
    í dag sem fór bara prýðilega yfir það. En ég ætla ekki að reyna lengur að
    fá svar um sinnaskipti Samfylkingarinnar og af hverju hún varð
    EES-flokkur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla að spyrja hv. þingmann vegna þess að hv. þingmaður er,
    eins og aðrir Samfylkingarmenn, orðinn núna mikill EES-sinni sem ég fagna
    — ég vona að það hangi eitthvað — og það er mikilvægt að halda utan um
    samninginn. Af hverju er Samfylkingin fullkomlega róleg yfir því að
    Evrópusambandið sé búið að brjóta EES-samninginn? Það setur á okkur
    verndartolla, brýtur fjórfrelsið. Af hverju eru hv. þingmenn — og nú
    verðið þið að venja ykkur á að vera aftur EES <ns:bjalla/> — svona rólegir
    yfir því þegar Evrópusambandið brýtur grunnprinsippin með hætti sem aldrei
    hefur sést áður með því að setja verndartolla á íslenskar
    iðnvörur?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>