<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:49:33" skst="KÞS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:50:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:49:33">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans seinna
    andsvar. Ég þekki mætavel muninn á Evrópusambandinu og Evrópska
    efnahagssvæðinu og hvað fellur þar undir. Ég ítreka hversu mikilvægt það
    er að vera með aðgang að þessum stóra markaði fyrir okkur sem samfélag og
    varðandi þau mál sem við erum að taka inn og njóta góðs af með þessu
    samkomulagi, erum vissulega ekki að fullu hluti af
    Evrópusambandinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi stöðuna sem kom upp varðandi kísilmálm er maður auðvitað
    ekkert sáttur við þá stöðu sem kom upp á þeim tíma en hagsmunagæsla
    þessarar ríkisstjórnar var með þeim hætti að hún beitti sér af fullum
    krafti til að verja okkar stöðu og það er auðvitað það sem við þurfum að
    gera á hverjum tíma. Við þurfum að verja stöðu okkar en við þurfum líka að
    standa við skuldbindingar okkar og það er nákvæmlega það sem við erum að
    gera hér í þessu máli, hvort sem fólki líkar það betur eða verr.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>