<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:50:57" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:52:23 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:50:57">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Kristjáni Þórði
    Snæbjarnarsyni kærlega fyrir að koma í þessa umræðu og taka umræðuna við
    okkur því að það skiptir miklu máli. Hv. þingmaður benti á að við þyrftum
    að vera með rétta innleiðingu, ég er sammála, og að tryggja réttindi
    fólksins. Hins vegar langaði mig að spyrja í tengslum við það að tryggja
    réttindi fólksins. Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af því hvað verður
    um réttindin sem fylgja lögunum sem stangast á? Mögulega þá lög sem samin
    eru hér af okkur á Alþingi sem við erum ekki að innleiða. Hvað með þau
    réttindi? Á fólk ekki að geta treyst þeim lögum? Það er það sem þetta
    snýst um. Þetta snýst bara um það þegar tvenn lög skarast. Hvernig er hægt
    að segja að það sé bara verið að tryggja réttindin á annarri hlið
    peningsins? Það er í raun og veru þannig að lög sem við myndum setja hér á
    Alþingi Íslendinga á morgun gætu verið orðin úrelt hinn daginn út af því
    að við höfum innleitt einhverja EES-reglu áður. Við erum ekki viljandi að
    láta þetta stangast á en það gerist í einstaka tilfellum. Þannig að ef
    þetta snýst um réttindi fólks þá spyr ég aftur: Hefur hv. þingmaður ekki
    áhyggjur af réttindum sem fylgja þeim íslensku lögum sem verða
    undir?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>