<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:52:29" skst="KÞS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:53:59 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:52:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti
    Gunnlaugsdóttur kærlega fyrir andsvarið og frábæra spurningu af því að
    þetta er nefnilega kjarni málsins, réttindi fólksins. Bara nákvæmlega eins
    og hún kom inn á í dag í hennar ræðu þá er það auðvitað mikilvægt að
    kerfið sé hér til að þjóna fólkinu og fólk þarf að geta treyst því að lög
    séu skýr og að lög sem Alþingi setur gildi hér á Íslandi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi vangaveltuna um það hvort ég óttist það hvað gildi þegar
    lögin stangast á þá kemur einmitt hv. þingmaður inn á þann punkt að ef
    Alþingi telur að lög eigi að virka á einn eða annan hátt þá þarf það að
    koma fram hér við setningu laganna. Það er mjög mikilvægt að ef það er
    einhver blæbrigðamunur í gildi í lögum eða við viljum halda einhverri
    ákveðinni sérstöðu þá þarf það að koma fram sem vilji þingsins,
    löggjafarvaldsins. Þess vegna óttast ég ekki áhrifin af því ef það er
    eitthvert ósamræmi þarna. Þá þurfum við að innleiða annars vegar gerðir
    EES með réttum hætti eða þá að tilgreina með sérstökum hætti að við ætlum
    að fylgja lögunum á einhvern annan afmarkaðan hátt. Þetta þarf að vera
    skýrt, það er alveg þannig.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>