<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:54:06" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:55:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:54:06">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Það eru ekki alltaf einhliða betri eða meiri
    réttindi sem fylgja EES-samningnum. Það er ekki útséð með að svo sé. En
    mig langaði að einbeita mér hér í seinna andsvari að því sem hv. þm.
    Guðlaugur Þór Þórðarson kom aðeins inn á áðan, þ.e. umræðunni um
    EES-samninginn hjá hæstv. ríkisstjórn og forystumönnum hennar og mörgum
    hv. þingmönnum í sumar þegar þeir gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til
    að tala niður EES-samninginn. Það var iðulega minnst á það að við hefðum
    ekkert um hann að segja. Svo brýtur Evrópusambandið á okkur og
    ríkisstjórnin virðist bara hafa lagst flöt fyrir því. Einhverjir tóku til
    varna en aðalatriðið var að reyna að koma Evrópusambandsumsókninni í gang
    aftur. Ég spyr því aftur: Ef trú ykkar er svona lítil á EES-samningnum, af
    hverju þorið þið þá ekki að berjast fyrir honum til að auka trúna á
    samninginn?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>