<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:55:22" skst="KÞS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:56:36 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:55:22">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið.
    Það er nákvæmlega það sem er verið að gera, nákvæmlega það sem er verið að
    gera hér í þingsal með umræðu um bókun 35; að tryggja og treysta þennan
    samning vegna þess að EES-samningurinn skiptir samfélagið gríðarlega miklu
    máli og ég tel mikilvægt að það sé enginn vafi á því hvernig ákvæði
    samningsins gilda.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi réttindi og skyldur, af því að nú er minn bakgrunnur úr
    þeim heimi þar sem hefur verið samið um kaup og kjör, þá fylgja því alltaf
    ákveðin réttindi, að vera með samning við aðila, en því fylgja iðulega
    líka skyldur. Það er yfirleitt ekki bara eitthvað gott sem þú færð út úr
    þessu. Það eru ákveðnar skyldur sem geta komið á móti líka, sem eru
    vissulega góðar og skyldurnar hvíla á ríkinu sem oftast eru til þess að
    bæta stöðu fólks. Ég get fullyrt það. En þetta er auðvitað mikilvægt
    <ns:bjalla/> og í sumar fengum við fram vilja þjóðarinnar. Það er
    mikilvægt að þora að spyrja spurninga og þora að fá niðurstöðu. Þetta
    skiptir gríðarlega miklu máli fyrir samfélagið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>