<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:56:50" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 18:58:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:56:50">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég var búinn að ákveða hvað ég hygðist spyrja hv.
    þingmann út í en svo hlustaði ég á orðaskipti hv. þingmanns við hv.
    þingmann Guðlaug Þór Þórðarson, hvar talið barst að brotum
    Evrópusambandsins gagnvart Íslandi sem EES-þjóð, hvar hv. þingmaður
    fullyrti að tekið hefði verið til fullra varna. Þá er eðlilegt að spyrja:
    Hver var árangurinn af því varnarspili? Ég get reyndar svarað því fyrir
    hv. þingmann. Hann var enginn. Þannig að það er ekkert sem segir okkur að
    það hafi verið tekið til fullra varna annað en niðurstaða málsins sem var
    núll. Ég kem úr þessu samfélagi sem átti allt undir og við létum að
    sjálfsögðu það fólk sem fór í forystu fyrir Ísland ekki í friði hvað
    varðar að halda áfram þessari baráttu. Ég verð að segja að okkur fannst
    ekki lögð sú áhersla á þetta mál sem hefði átt að gera. En kannski leitar
    klárinn áfram þangað sem hann er kvaldastur. Það kom hér fram í dag í máli
    hæstv. ráðherra að niðurstaðan hefði verið ásættanleg. Ásættanleg? Algjört
    tap. Við fengum ekkert út úr þessu. Niðurstaðan var að mati ráðherra
    ásættanleg.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Næsta spurning hlýtur að vera til hv. þm. Kristjáns Þórðar
    Snæbjarnarsonar, hvort það sé einnig hans mat að niðurstaðan úr þessum
    mikla varnarslag sem hv. þingmaður lýsir hér hafi verið ásættanleg. Hin
    spurningin gæti kannski eðlilega verið: Ef þetta er ásættanlegur árangur,
    og við horfum kannski fram á að þurfa að verja okkur í þessu máli sem hér
    er til umræðu fyrir dómstólnum, hvers vegna ættum við að treysta þessari
    sömu sveit til að taka þann varnarslag?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>