<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T18:58:56" skst="KÞS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 19:00:59 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T18:58:56">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni
    fyrir hans andsvar. Það er auðvitað þannig, eins og við ræddum hérna áðan,
    aðrir þingmenn, með stöðuna og hvernig við tryggjum sem best virkni
    samnings og samstarfs við þjóðir í okkar viðskiptasambandi. Við verðum
    auðvitað að fylgja þeim leikreglum sem eru í gangi. Réttindi og skyldur,
    þetta skiptir gríðarlega miklu máli, og aðgangur okkar að þessum markaði
    skiptir samfélagið gríðarlega miklu máli. Ég tel að það væri hægt að gera
    jafnvel meira og jafnvel betur í mörgum þáttum af því að ég held að
    samstarf okkar á Evrópugrundu sé okkur mikilvægt og veiti fyrirtækjum og
    samfélaginu öllu gríðarlega mikilvægan aðgang að þessu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi stöðuna og þá varnarbaráttu sem við stóðum frammi fyrir
    þá er það auðvitað alltaf þannig að þú vilt meira þegar þú ert í
    samningaviðræðum eða að verja þína hagsmuni. Auðvitað viltu alltaf meira
    og auðvitað hefði maður ekki viljað að við hefðum endað í þessari stöðu en
    verja þó stöðuna sem uppi var. Ég minnist þess að m.a. það fyrirtæki sem
    starfar undir þessu tók þó jákvætt í þá niðurstöðu sem var í málinu og tel
    ég að það skipti sköpum hvað þetta varðar. En það er okkar að standa vörð
    um samninginn. Það er okkar að standa við okkar skuldbindingar í þessu og
    tryggja stöðu okkar. Með þessu máli erum við að tryggja virkni
    EES-samningsins og í þessu máli erum við að standa við það sem við þurfum
    að gera.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>