<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T19:01:08" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 19:02:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T19:01:08">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Hér var boðið upp á einhverja orðasúpu sem ég náði
    engu samhengi í, þ.e. í framhaldi af spurningunum sem lágu til grundvallar
    þessu svari. Við fengum yfirlit yfir fundi hæstv. utanríkisráðherra á 11
    mánaða tímabili þar sem þetta var ekki tekið fyrir. Og hér er verið að
    halda því fram að þessi samningur snúist um eitthvað allt annað en hann
    snerist um í upphafi. Hann er undirritaður í Porto árið 1992 og verður að
    lögum í janúar 1993 sem, númer eitt, tvö og þrjú, tollabandalag. Þá voru
    gerðirnar um 1.800. Í dag eru þetta nær því að vera um 15.000 gjörðir og
    bókanir en var í upphafi fyrst og fremst tollasamningur. Það var ekki einu
    sinni hægt að verja þetta grundvallarinntak upphaflega samningsins.
    <ns:bjalla/> Svo að ég komi aftur með sömu spurninguna: Er það að mati hv.
    þingmanns, eins og mat hæstv. ráðherra, ásættanlegur árangur?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>