<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T19:02:36" skst="KÞS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 19:03:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T19:02:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir
    hans seinna andsvar. Ég ítreka afstöðu mína gagnvart því að þeim samningi
    sem við erum að ræða hér og þeirri bókun sem ég tel að sé mikilvægt að við
    innleiðum á réttan hátt, bókun 35, við þann samning sem er í gildi. Ég
    held að það skipti gríðarlega miklu máli að við stöndum okkar plikt hvað
    þetta varðar, enda veitir EES-samningurinn okkur aðgang að þessum markaði
    og þar undir eru þeir þættir sem skipta máli. Ég held að það sé gríðarlega
    mikilvægt að við komumst áfram með þetta mál. — Takk fyrir.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>