<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T19:04:23" skst="IngD" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 19:20:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T19:04:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Hér ræðum við bókun 35. Í upphafi langar mig að
    vísa til ummæla hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar sem kom inn á mjög
    mikilvægan punkt hérna áðan í andsvörum við hv. þm. Kristján Þórð
    Snæbjarnarson. Af hverju eyddi ríkisstjórnin svona miklum peningum,
    milljörðum, í að koma okkur úr samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, inn
    í Evrópusambandið? Af hverju var eytt svona miklum peningum í það? Mér
    virðist þessi ríkisstjórn, sérstaklega Viðreisn og Samfylking, hafa misst
    trú á samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Það eru þau sem eru að tala
    samninginn niður, enginn annar. Þetta fólk talar samninginn um Evrópska
    efnahagssvæðið niður. Við skulum halda því til haga.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eins og ég sagði hérna áðan: Við erum að ræða hérna frumvarp til
    laga um innleiðingu á bókun 35 sem hefur verið margumtalað, bæði hér á
    þingi og síðan úti í samfélaginu, forgangsmál númer eitt eða nærri því
    númer eitt hjá ríkisstjórn Viðreisnar og Samfylkingar. Ég sleppi Flokki
    fólksins vegna þess að hann er með minni áherslu á þetta mál. En
    þjóðaratkvæðagreiðslan sem fram fór hérna í ágúst var líka ekkert smá
    mikið forgangsmál, þjóðaratkvæðagreiðslan sem Brussel-báknið, Viðreisn og
    Samfylkingin töpuðu 29. ágúst með mjög góðum minni hluta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég er enn þá þeirrar skoðunar að sú breyting sem frumvarpinu er
    ætlað að gera á lögum um Evrópska efnahagssvæðið gangi þvert á ákvörðun
    Alþingis um samþykkt EES-samningsins árið 1993. Hin sérstaka ráðstöfun sem
    gerð var við frágang bókunar 35 við samninginn var ekki
    bráðabirgðaráðstöfun sem breyta mætti síðar og fól ekki í sér mistök. Við
    skulum hafa það alveg á tæru. Þetta var fullkomlega meðvitað. Þetta var
    fullkomlega meðvitað þeirra alþingismanna sem sátu á þingi á þessum
    tíma.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það var farið vel yfir þetta í nefndaráliti 1. minni hluta
    utanríkismálanefndar, hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, síðast
    þegar hæstv. utanríkisráðherra Viðreisnar ætlaði að rífa þetta í gegnum
    þingið. Þetta álit ber númerið 666. Mér finnst það vel við hæfi.
    Niðurstaðan um bókun 35 var nefnilega ein af forsendum þess að meiri hluti
    Alþingis sæi sér fært að samþykkja samninginn. Þetta var ein af forsendum
    þess að Alþingi sæi sér fært að samþykkja samninginn. Niðurstaðan sú var
    afleiðing umræðu og ákvarðanatöku um grundvallaratriði er vörðuðu
    fullveldi Íslands, stjórnarskrána, samband landsins við Evrópusambandið og
    eðli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Aðeins um ESA og samningsbrotamál þess gegn Íslandi, tómlætið.
    Þessi samningur um Evrópska efnahagssvæðið tekur gildi 1993 og hefur bara
    gengið mjög vel. Framkvæmdin hefur bara gengið mjög vel. Það er ekki fyrr
    en 2017 sem formlegar kvartanir fara að koma og það er tekið til varna.
    Síðan kemur nýr utanríkisráðherra árið 2021 og þá breyttust einhvern
    veginn varnir þeirrar ríkisstjórnar sem þá var við völd, hætt var að
    verjast gagnvart ESA. Það er ekki gott. Ég ætla að koma aðeins meira og
    betur að þessu seinna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Enn og aftur vil ég minna hv. þingmenn á að við það að taka sæti á
    Alþingi er undirritað drengskaparheit að stjórnarskrá. Þingmenn, og
    ráðherrar, sem eru jú einnig þingmenn, lofa að verja og virða stjórnarskrá
    Íslands í öllum okkar verkum, stjórnarskrána sem greinilega er lítið mál
    fyrir þá sömu þingmenn og ráðherra að ganga gegn, brjóta ákvæði hennar
    fyrir þátttöku í ríkisstjórn og ætla að hleypa að þessum óskapnaði sem
    áætluð innleiðing á bókun 35 er.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Af þessu tilefni langar mig aðeins að vitna til orða hæstv.
    utanríkisráðherra í umræðu fyrr í dag. Hún telur þessar breytingar vera
    innan marka stjórnarskrár og vísar til Þorgeirs Örlygssonar. En það er nú
    bara þannig, herra forseti, að um þetta mál er tekist á. Menn eru ekki
    sammála um það hvort þessi áætlaða innleiðing í þessu frumvarpi sé á skjön
    við stjórnarskrá Íslands. Menn eru ekki sammála um þetta. Þess vegna segi
    ég: Stjórnarskráin á að njóta vafans. Við undirritum hér drengskaparheit
    að stjórnarskrá og ef það eru álitamál að hér sé frumvarp í meðförum
    þingsins sem brjóti hana þá getur það ekki gengið upp. Stjórnarskráin
    verður að njóta vafans í öllum tilvikum. 2. gr. stjórnarskrár lýðveldisins
    hljóðar svo, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/lagas/nuna/1944033.html-->

    <ns:mgr>„Alþingi og forseti Íslands fara saman með
    löggjafarvaldið.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hef sagt þetta áður í þessum ræðustól og ætla að endurtaka einu
    sinni enn:</ns:mgr>

    <ns:mgr>„Alþingi og forseti Íslands fara saman með
    löggjafarvaldið.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Bókun 35 eins og hún er í þessu frumvarpi og er leidd í lög
    samkvæmt frumvarpinu segir svo, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/altext/158/s/0134.html-->

    <ns:mgr>„Ef skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir
    skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum er ósamrýmanlegt öðru almennu
    lagaákvæði skal hið fyrrnefnda ganga framar …“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sem sagt, ef íslensk lög sem sett eru hér á þingi ganga í berhögg
    við einhverja reglugerð eða innleiðingu frá Evrópusambandinu eða
    EES-samningnum sem er líka innleidd hér á landi með ákveðnum hætti
    annaðhvort áður eða eftir að bókunin verður að lögum, ef hún verður að
    lögum, þá gangi reglugerðin eða lögin frá Evrópusambandinu framar. Ef
    Alþingi dettur síðan í hug á næsta þingi eða hvenær sem er að setja lög í
    einhvern texta, einhverja reglu og við erum í góðri trú hér í þessum sal
    að setja þessi lög og fara svo út í samfélagið og ganga þar í gildi — nei,
    þá finna menn bara eitthvert ákvæði sem enginn sá fyrir frá EES sem búið
    er að innleiða á einhvern hátt og það gengur í berhögg við þessa íslensku
    lagareglu sem við erum nýbúin að setja, kannski á næsta þingi. Hvort
    skyldi nú ganga framar? Það sem við héldum sem löggjafarvald að við værum
    að mæla fyrir um? Ég tel að löggjafarvaldið sé með þessu móti hrifsað frá
    Alþingi. Já, hrifsað frá Alþingi og við það get ég ekki unað. Ég hef ekki
    skipt um skoðun. Rúmum 30 árum eftir að Alþingi samþykkti samninginn um
    Evrópska efnahagssvæðið eru forsendurnar í mínum huga fullkomlega
    óbreyttar. Í meira en þrjá áratugi hefur samningnum verið framfylgt með
    tilliti til þeirrar grundvallarforsendu sem fólst í frágangi bókunar 35.
    Það hefur ekkert breyst. Ábending Hæstaréttar um mikilvægi þess að skýra
    samspil íslensks regluverks og regluverks Evrópusambandsins á
    málefnasviðum EES-samningsins felur ekki í sér kröfu um að
    grundvallarforsendum samningsins sé breytt á tiltekinn hátt, enda fæli
    slíkt í sér boðvald, dómsvald, yfir löggjafarvaldi. Það er ekki hægt að
    sjá að það hafi verið ætlun Hæstaréttar enda gengi slíkt gegn stjórnarskrá
    lýðveldisins Íslands.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í fyrri umræðum hef ég vitnað til skrifa Markúsar
    Sigurbjörnssonar, fyrrverandi forseta Hæstaréttar. Ég held að einhverjir
    hafi gert það hér í dag en mig langar að segja þetta, með leyfi forseta,
    haft eftir Markúsi Sigurbjörnssyni:</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/altext/raeda/156/rad20250607T134633.html-->

    <ns:mgr>„Staðreyndin er hins vegar sú að ekki var mögulegt að ganga lengra
    innan þess ramma sem stjórnarskrá Íslands setur. Stjórnarskráin gerir
    hvorki ráð fyrir því að takmarka megi fullveldi lýðveldisins með framsali
    löggjafarvalds til alþjóðastofnana né að landslög, sem byggjast á
    alþjóðlegum skuldbindingum eins og EES-samningnum, geti eingöngu af þeim
    sökum öðlast ríkari stöðu en önnur almenn löggjöf.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frumvarpið gengur þannig í berhögg við stjórnarskrána. Ég hef
    einnig á fyrri stigum vitnað til skrifa Jóns Steinars Gunnlaugssonar,
    einnig fyrrverandi hæstaréttardómara, sem ritaði eftirfarandi árið 2023,
    og hefur raunar nýverið einnig, ég er bara ekki með það hérna með mér,
    tjáð sig um þetta mál. Hann segir, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <!--https://jonsteinar.is/index.php/2023/04/18/fullveldi/-->

    <ns:mgr>„Að mínum dómi er ljóst að efni fyrrgreinds frumvarps stenst ekki
    fullveldisrétt þjóðarinnar sem allir virðast vera sammála um að felist í
    stjórnarskránni. Það er því ástæða til að benda ríkisstjórn Íslands á að
    ekki er unnt að samþykkja nefnt frumvarp sem lög í landinu nema fyrst hafi
    stjórnarskránni verið breytt í þá veru að heimila svona
    lagasetningu.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Akkúrat. Stjórnarskráin heimilar þetta ekki. Hæstv.
    utanríkisráðherra hefur verið hér í dag að vitna til lögfræðinga sem telja
    þetta ekki ganga í berhögg við stjórnarskrána. Svo eru hér aðrir sem telja
    þetta ganga í berhögg við stjórnarskrána og finnst mönnum það bara í lagi
    að stjórnarskráin njóti ekki vafans? Finnst mönnum það virkilega í lagi?
    Mér finnst það ekki í lagi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla að vitna til eins lögfræðings til viðbótar. Stefán Már
    Stefánsson lagaprófessor hefur líka tjáð sig um þetta mál og margir
    fleiri. Ég ætla ekki að hafa það orðrétt eftir en hann telur að það sé
    ljóst að forsenda þess að hægt sé að samþykkja þetta frumvarp sé að
    stjórnarskránni verði fyrst breytt þannig að hún heimili það valdframsal
    sem frumvarpið kveður á um. Mér finnst ekki góður bragur á því að það eigi
    bara að skauta fram hjá stjórnarskrá lýðveldisins Íslands sem allir hér
    hafa undirritað drengskaparheit að. Mér finnst ekki góður bragur á því.
    Hvað sem mönnum finnst um málið í heild þá finnst mér ekki góður bragur á
    því að ætla að skauta fram hjá stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta mál, bókun 35 við EES-samninginn, er í raun miklu stærra en
    bæði Icesave-málið og málið varðandi þriðja orkupakka Evrópusambandsins.
    Miklir fjárhagslegir hagsmunir voru í húfi í Icesave-málinu sem snerist þó
    einungis um eina tiltekna lagagerð sambandsins. Frumvarp Þorgerðar
    Katrínar Gunnarsdóttur, hæstv. utanríkisráðherra Viðreisnar, um bókun 35
    varðar hins vegar allt regluverk frá Evrópusambandinu sem hefur verið og
    mun verða tekið upp hér á landi í gegnum EES-samninginn og gerir hana í
    reynd æðri almennum innlendum lögum. Þar á meðal er um að ræða allt
    regluverk sem tekið hefur verið og verður tekið upp frá sambandinu í
    framtíðinni varðandi bæði innstæðutryggingar og orkumál. Viljum við þetta?
    Nei, takk.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þar sem ég á stuttan tíma eftir þá langar mig aðeins að ræða
    ákvörðun ESA um að fara með Ísland fyrir EFTA-dómstólinn á grundvelli
    samningsbrotamáls. Ég segi bara: Fínt, farið þið með þetta fyrir dómstóla.
    Við eigum að ráða besta mögulega teymið til að gæta hagsmuna okkar í
    málinu. Tökum þetta mál af dagskrá þingsins meðan þetta verður þá í
    meðförum dómstóla. Dómstólaleiðin þýðir þó að möguleiki væri á því að dæmt
    yrði okkur í vil. Það er alltaf möguleiki á því. Sá möguleiki er hins
    vegar að engu gerður með því að gefast upp fyrir fram eins og til stendur
    með frumvarpinu, kasta inn handklæðinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Komist EFTA-dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að fara bæri að kröfu
    eftirlitsstofnunar EFTA um forgang innleidds regluverks frá
    Evrópusambandinu þá erum við komin með staðfestar salamíaðferðir
    Evrópusambandsins. Með öðrum orðum: Þetta er það sem frumvarpið felur í
    sér. Svo er það þetta: Tómlæti ESA í hátt í 30 ár og svo látið vaða. Um
    fyrirframuppgjöf er að ræða án þess að látið sé í það minnsta reyna á
    málið fyrst fyrir dómstólum, þ.e. haldi hæstv. utanríkisráðherra sig við
    að keyra þetta í gegn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil segja þetta — ég er alveg að ljúka máli mínu, herra forseti
    — hæstv. utanríkisráðherra er keppnismanneskja. Hún er ekki þekkt fyrir að
    kasta inn handklæðinu. Ég vil segja við hæstv. utanríkisráðherra, þó að
    hún sé ekki í þessum sal núna: Ekki kasta inn handklæðinu í þessu máli.
    Tökum til sterkra varna og leggjum EFTA-dómstólinn, leggjum í það minnsta
    metnað okkar í það að halda uppi málsvörn fyrir Ísland. Ef ríkisstjórnin
    ætlar ekki að verjast þá þurfum við bara nýja ríkisstjórn strax, þá
    ríkisstjórn sem treystir sér í verkið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>