<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T19:20:44" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 19:22:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T19:20:44">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir
    hennar afbragðsfínu ræðu. Í mínum huga er þessi framlagning bókunar 35 á
    þessum tímapunkti hér í þinginu ákveðin pólitísk reyksprengja.
    Ríkisstjórnin er að reyna að beina umræðunni frá efnahagsástandinu, frá
    því að ríkisstjórnin er með allt í skrúfunni, yfir í það að ræða bókun 35.
    En mig langar að spyrja hins vegar hv. þingmann þar sem ég hef bara eina
    mínútu, virðulegur forseti …</ns:mgr>

    <ns:mgr> <ns:forseti skst="BergÓ">Hv. þingmaður hefur mínútu til
    viðbótar.</ns:forseti> </ns:mgr>

    <ns:mgr>Mínútu til viðbótar, já. Þá langar mig kannski að koma að því sem
    ég ætlaði að spyrja um, þakka þér fyrir, virðulegur forseti. Í ljósi þess
    sem hefur breyst frá því að við vorum að ræða hér bókun 35 fyrst, að nú er
    ESA búið að höfða mál á hendur Íslandi, er ekki hv. þingmaður sammála því
    að það væri nær að íslenska ríkið myndi þá einbeita sér nú að því að grípa
    til varna fyrir hönd Íslands og sjá hvað kemur út úr EFTA-dómstólnum og
    klára það áður en haldið er áfram að reyna að keyra þetta mál hér í
    gegn?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>