<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T19:22:42" skst="IngD" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 19:25:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T19:22:42">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir
    prýðisgott andsvar. Ég held að það sé vel til fundið og ég hef heyrt
    fleiri hér í dag kalla þetta mál reyksprengju. Þetta er náttúrlega
    reyksprengja og ætti náttúrlega ekki að vera til umræðu í þinginu núna.
    Varðandi málatilbúnað ESA gagnvart Íslandi, samningsbrotamálið, var
    spurningin ekki eitthvað á þessa leið, hvort við ættum ekki að leggja
    málið til hliðar og taka til varna? Algjörlega, það er nákvæmlega það sem
    ég endaði innlegg mitt hérna áðan á. Mér finnst frekar undarlegt að vera
    að ræða það. Ég skil heldur ekki af hverju er verið að henda þessu inn í
    þingið núna strax í kjölfar þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu sem haldin var
    29. ágúst þar sem var afgerandi niðurstaða íslensku þjóðarinnar. Það var
    ekkert naumt á munum. Ég skil ekki af hverju það er verið að koma með
    þetta núna inn í þingið þegar, eins og ég heyrði hérna í umræðunni í dag,
    menn vissu að það væri á leiðinni samningsbrotamál frá ESA. Af hverju var
    ekki greint frá því fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna t.d.? Ég ætla að giska á
    af hverju það var ekki gert. Ég held að það hafi ekki verið gert vegna
    þess að þá hefði verið alveg klárt að þau hefðu getað kastað inn
    handklæðinu og þjóðaratkvæðagreiðslan hefði tapast með miklu stærri hætti
    fyrir þau. Það held ég.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þannig að ég segi: Við eigum að taka til sterkra varna. Við eigum
    að skipa öflugasta málsvarnarteymi sem við getum fundið. Við eigum að
    leggja þetta frumvarp til hliðar meðan málið verður leitt til lykta. Og
    eitt enn: Stjórnarskráin verður alltaf að njóta vafans. Ég meina, það er
    tekist hér á og það eru ekki bara við hérna í þessum sal, það er tekist á
    um það. Ég er ekki löglærð en löglærðir aðilar, hæstaréttardómarar og
    lögfræðingar úti í bæ, eru ekki sammála um hvort stjórnarskráin heimili
    þetta valdframsal.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>