<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T19:25:06" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 19:27:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T19:25:06">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar fyrra
    svar. Nú er hæstv. ríkisstjórn búin að eyða um 600 millj. kr. í
    þjóðaratkvæðagreiðslu um að láta þjóðina taka afstöðu til þess hvort það
    eigi að halda áfram ESB-vegferðinni eða ekki. Hér var talað um að hér ætti
    að leyfa þjóðinni að ráða í þessu brýna máli. Samt var þetta mál eiginlega
    aldrei nefnt í kosningabaráttu hvorki Viðreisnar né Samfylkingarinnar og
    málið aldrei sett á dagskrá í kosningabaráttunni. Þriðji
    ríkisstjórnarflokkurinn, Flokkur fólksins, er náttúrlega á móti inngöngu í
    ESB þannig að ekki voru þau að setja málið á dagskrá.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Nú er sú vegferð búin en nú er þetta mál, ef mér telst rétt til,
    að koma inn í þriðja skipti. Bókun 35 er að koma inn í þriðja skipti og
    hér hafa hæstv. ráðherrar og hv. stjórnarþingmenn komið upp í hinum og
    þessum málum og talað um hinn mikla þingmeirihluta og hinn mikla styrk sem
    ríkisstjórnin hafi en samt hefur þeim aldrei lánast að klára þetta mál. Ég
    velti fyrir mér, þegar þetta mál er að koma hingað inn í þriðja skipti,
    hvort hv. þingmaður telji í rauninni ekki að þetta mál sé orðið eitthvert
    jójó-mál ríkisstjórnarinnar til að henda hér inn öðru hvoru í þingið til
    þess að beina athygli fólks frá hárri verðbólgu, háum vöxtum, hækkandi
    atvinnuleysi, versnandi horfum á vinnumarkaði og versnandi horfum almennt
    í atvinnulífinu og fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu. Er ekki bara
    verið að henda þessu máli hingað inn núna og vonast til að það verði sem
    lengst í þinginu þannig að við séum að tala um eitthvað annað en
    efnahagsástandið? Hefur hv. þingmaður einhverja trú á því að hæstv.
    ríkisstjórn ætli að klára þetta mál í þetta skipti?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>