<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T19:27:27" skst="IngD" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 19:29:22 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T19:27:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir
    seinna andsvarið. Hann talar um hvort þetta sé jójó-mál, hvort
    ríkisstjórnin sé ekki bara að henda þessu inn í þingið til að beina
    athyglinni annað, beina athygli fólks frá atvinnu- og efnahagsástandinu í
    landinu, beina athyglinni frá því t.d. að nú er ekki bjart fram undan
    varðandi kjarasamningana. Ég hef reyndar ekki séð fréttir alveg síðasta
    klukkutímann. Það bendir margt til að þeim verði sagt upp og það er ekki
    góðs viti, held ég, að ríkisstjórnin klári þetta mál. Ég vildi óska þess.
    Ég vil bara svara þessu þannig. Ég vildi óska þess að hæstv.
    utanríkisráðherra myndi leggja þetta mál til hliðar og við fengjum úr því
    skorið, við færum í þetta dómsmál og færum í þetta samningsbrotamál og
    fengjum líka úr því skorið af því að það er tekist á um
    stjórnarskrárþáttinn. Ég tel að stjórnarskráin heimili ekki þetta
    valdframsal. Aðrir eru annarrar skoðunar. Er hægt að skera úr um það? Ég
    tel að það sé mikilvægt. Þetta er risastórt mál og ef ég á að svara því
    hvort ég telji að ríkisstjórnin geti komið þessu í gegnum þingið held ég
    að það sé markmiðið. Ég held að það sé raunverulega markmiðið núna. Þau
    töpuðu þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi aðlögunarviðræður við
    Evrópusambandið. Ég held að þetta eigi að keyra í gegn, því
    miður.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>