<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T19:38:14" skst="TÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 19:39:58 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T19:38:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni Grími Grímssyni kærlega
    fyrir sína yfirveguðu ræðu. Mig langar bara rétt að drepa á eitt sem var í
    gangi hér aðeins fyrr í dag í fyrirspurnum og andsvörum hjá hv. þm.
    Sigurði Erni Hilmarssyni við hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur og hæstv.
    ráðherra Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur um þennan fund sem átti sér stað
    síðasta haust þar sem Árni Páll Árnason lét þar vita að þetta yrði stórmál
    með bókun 35 og að ríkisstjórnin og Ísland ættu von á þessari kæru sem er
    núna komið í ljós að verður. Þetta gerist þarna um haustið, þá er eftir
    restin af vetrinum, málið er sett á ís en það er allt vorþingið eftir og
    látið vita að það þurfi í raun og veru að klára þetta á vorþingi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ákvörðun er tekin af hæstv. ríkisstjórn og af ráðherra um að fara
    ekki í þetta mál. 6. mars er aftur á móti tilkynnt og síðan lögð fram
    þingsályktunartillaga um að fara í ESB-vegferðina. Mig langar aðeins að
    heyra frá hv. þingmanni, í ljósi þess hversu snaggaralega hinir
    þingmennirnir og ráðherrarnir náðu að koma sér undan þessari spurningu,
    hvort hv. þingmanni finnist það ekki mjög skrýtið að það sé ekkert gert í
    þessum málum þegar búið er í raun og veru að hóta lögsókn og hæstv.
    ríkisstjórn hefur heilt vor til að gera eitthvað í þessu í staðinn fyrir
    að leggja af stað í einhvern Evrópuleiðangur áður en þetta er
    afgreitt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>