<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T19:40:06" skst="GrímG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 19:41:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T19:40:06">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Svo ég
    reyni að svara spurningunni fyrst þá finnst mér það ekkert endilega
    skrýtið og ekki heldur mjög skrýtið. Það er þannig að þótt ég minnist þess
    ekki sérstaklega sat ég örugglega þennan fund þegar Árni Páll Árnason
    tilkynnti þetta. Ég er í nefnd sem heitir EFTA-EES-nefnd og ESA fundar með
    okkur reglulega og kemur þá hingað til landsins. Þetta mál hefur jafnan
    verið til umræðu og þó að ég hafi viðurkennt hér áðan að ég muni þetta
    ekki sérstaklega þá efast ég ekkert um að Árni Páll fari með rétt mál. Þá
    get ég velt því upp af hverju þetta hefur kannski ekki verið minnisstætt
    og staðreyndin er sú að við erum búin að eiga þetta mál yfir höfði okkar
    núna árum saman og jafnvel í upp undir tvo áratugi. Ég held að það hafi
    ekki haft svo mikið að segja að þetta væri mál sem yrði vísað til
    dómstólsins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég satt að segja var að vonast, eins og ég sagði í ræðu minni
    áðan, að ESA hefði ákveðið að bíða og sjá hver niðurstaða þessa máls yrði
    hér og þá eftir atvikum fara fram með mál ef málið hefði ekki klárast
    núna. En sennilega má bara vísa í það að þolinmæði þeirra hafi verið
    þrotin og þeir sem eru í stjórn ESA hafi talið að þeir kæmust ekki lengra
    með þetta mál.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>