<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T19:41:59" skst="TÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 19:43:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T19:41:59">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Grími Grímssyni kærlega fyrir
    andsvarið þó að ég verði að viðurkenna að ég skildi ekki nákvæmlega hvert
    hann var að fara, hvort þetta átti sér stað eða ekki, en svo átti það sér
    stað en samt ekki, svo var þetta líklega þarna einhvers staðar. Ég vona að
    ráðuneytið hafi verið betur meðvitað um þetta en hv. þingmaður, ekki það
    að hann ber ekki ábyrgð á þessu. Það gerir ráðherrann hans og flokkurinn,
    en þetta var alla vega mjög furðulegt. Ég vona að þetta sé í einhverjum
    betri og fastari skorðum einhvers staðar annars staðar. Mér finnst skrýtið
    að vita af hættunni þetta lengi. Það er rosalega mikið talað um
    EES-samninginn núna. Hæstv. ráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir byrjar
    náttúrlega strax korteri eftir atkvæðagreiðsluna og í raun og veru bara um
    nóttina, aðfaranótt 30. ágúst, var hún farin að leggja drög að því sem við
    erum að ræða hér í dag þegar hún áttaði sig á hver úrslitin væru.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En mig langaði bara aðeins að velta því upp með hv. þingmanni af
    hverju honum finnst að eigi — af því að hv. þm. Ingibjörg Davíðsdóttir var
    einmitt að tala um það hér rétt áðan hversu mikil keppnismanneskja hún er
    — einhvern veginn að fara að strauja í þessa vegferð núna með bókun 35
    þegar það hefði auðvitað verið hægt að gera síðasta vor. Er EES-talið hjá
    Viðreisn bara tóm tunna? Er Viðreisn EES-flokkur eða ESB-flokkur? Það er
    ekki hægt að velja á milli eftir því sem hentar. Annaðhvort ertu á
    ESB-vegferðinni eða þú ætlar að virða EES-samninginn. Þannig að ég vil fá
    einhver aðeins skýrari svör frá hv. þingmanni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>