<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T19:47:32" skst="GrímG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 19:49:57 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T19:47:32">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur
    fyrir andsvarið. Það er vissulega svo, og ég er ekki neitt að reyna að
    draga fjöður yfir það, að það er sannarlega ágreiningur um hvort þetta sé
    á skjön við ákvæði stjórnarskrár. Nú hef ég það ekki á takteinum en ég
    hygg að það hafi verið þannig kannski líka 1992, að það hafi verið
    ágreiningur um hvort samningurinn væri á skjön við stjórnarskrá. Það var
    samt sem áður farin sú leið að innleiða hann og samþykkja lög þar sem hann
    var innleiddur. Þannig að ég hugsa að á hverjum tíma þurfi að taka afstöðu
    til þess. Trúum við því að við séum að fara á skjön við stjórnarskrá? Og
    ef við trúum því að svo sé ekki getum við haldið áfram með málið. Þannig
    að ég held að það sé niðurstaðan og ég held að það væri niðurstaða sem ég
    myndi styðja.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil taka undir með hv. þingmanni að gæði lagasetningar eru
    grundvallaratriði. Ég held að það væri hægt að komast hjá því að það
    þyrfti nokkurn tíma að reyna á svona reglu ef við hér á hinu háa Alþingi
    myndum gæta að því hvernig við setjum lög. Og ef lög eru hér til meðferðar
    í nefndum og á þinginu hlýtur að eiga að geta komið í ljós hvort ákvæði
    frumvarpanna sem hugsanlega verða að lögum síðar séu á skjön við önnur
    lög. Mér finnst það eiginlega svona grundvallaratriði sem við þurfum að
    geta skoðað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég gerði það reyndar viljandi hér í lok ræðu minnar áðan að tala
    ekki um niðurstöðu EFTA-dómstólsins. Auðvitað er það þannig að þegar farið
    er í dómsmál þá vitum við ekki niðurstöðuna. Það er eðli dómsmála og
    kannski verður það bara þannig að við munum fá þá niðurstöðu að við getum
    haldið áfram að vera með 3. gr. laganna eins og hún er. Það getur vel
    verið. En við getum líka fengið að við þurfum að innleiða með þeim hætti
    sem við erum að gera núna. Við getum hugsanlega fengið þá niðurstöðu að
    það þurfi að innleiða þetta með einhverjum hætti sem er enn meira
    íþyngjandi en við erum að tala um hér.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>