<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T19:50:06" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 19:52:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T19:50:06">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir svarið. Ég
    held að það sé nefnilega alveg rétt hjá honum að á sínum tíma, árið 1992,
    vorum við ekki heldur sammála. Ég held að það sé alveg rétt. En ég held
    líka að þess vegna hafi samningurinn verið undirritaður og náð í gegn á
    Alþingi Íslendinga af því að bókunin var með þeim hætti sem hún var í
    samningnum þá. Fólk samþykkti samninginn af því að þessi forgangsregla var
    ekki til staðar. Það var samþykkt í Evrópu líka og þetta er bara samningur
    og ég lít svo á málið að nú sé að koma eitthvað algjörlega nýtt. Þeir
    vilja bara breyta grundvallaratriðum samningsins og það finnst mér vera
    eitthvað sem við þurfum að verjast en það er kannski þar sem við erum ekki
    alveg sammála.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þannig að mig langar kannski að spyrja bara hérna í seinna
    andsvari hvort hv. þingmaður hafi þá ekki áhyggjur af lögum sem við semjum
    núna á Alþingi Íslendinga. Tökum sem dæmi að við erum með þessi
    leigubremsulög. Það er ekkert í því frumvarpi þar sem stendur að það sé nú
    bara alveg séríslenskt, að við viljum að það haldi, enda er enginn að
    setja slíka klásúlu inn í lögin. En við getum fengið einhverja EES-gerð
    eftir nokkra mánuði sem myndi ógilda þau eða, það sem verra er, það gæti
    verið eitthvað áður sem myndi gera þau ógild og þá er þessi réttur um
    íslensku lögin ekki til staðar, þannig að þurfum við ekki að byrja á að
    skoða hvort það sé möguleiki á að það sé bara mikið af lögum sem skarast
    áður en við förum að hlaða ofan á þetta, ef við ætlum að samþykkja bókun
    35?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>