<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T19:52:08" skst="GrímG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 19:54:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T19:52:08">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur
    fyrir hennar síðara andsvar. Þótt hún hafi ekki gert það að neinu atriði
    þá er nú raunverulega bara skemmtilegt að vera svolítið ósammála. Þannig
    held ég að það gerist nú hérna í þessum sal og við munum ekki leysa það.
    Hins vegar held ég að umræðan sé áhugaverð. Ef ég skildi hv. þingmann rétt
    var hún að velta fyrir sér að það lægi fyrir eldra lagaákvæði sem væri
    upprunnið frá EES og við værum að setja lög og gættum ekki að því að önnur
    lagaákvæði trompuðu hitt. Og þetta er auðvitað þessi forgangsregla sem um
    ræðir og það er þá breytingin sem er verið að gera núna. Það er verið að
    færa okkur frá skýringarreglu yfir í forgangsreglu. Það er það sem
    væntanlega er grundvallaratriði til þess að mæta því sem margir hafa
    haldið fram, að við höfum ekki náð að innleiða nægilega vel þessa reglu í
    lögunum sem tóku gildi 1. janúar 1994. Og svo ég lesi bara það sem stendur
    í fororðunum, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <ns:mgr><!--https://www.althingi.is/altext/pdf/158/s/0134.pdf //eyb-->„Í
    fororðum með bókuninni segir jafnframt: „Þar eð með samningi þessum er
    stefnt að einsleitu evrópsku efnahagssvæði …““ — það er ástæðan — „„sem
    byggist á sameiginlegum reglum, án þess að samningsaðila sé gert að
    framselja löggjafarvald til stofnana Evrópska efnahagssvæðisins““ — án
    þess að samningsaðila sé gert að framselja löggjafarvald til stofnana
    Evrópska efnahagssvæðisins. Ég veit að þetta eru miklu flóknari
    lögfræðileg atriði en bara að lesa þessa setningu. En þetta er einfaldlega
    samt sem áður það sem við hengjum hatt okkar væntanlega á, að það er
    sérstaklega tiltekið í bókuninni að það sé ekki verið að framselja
    lagasetningarvaldið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>