<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T20:26:17" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 20:28:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T20:26:17">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni kærlega
    fyrir virkilega góða ræðu. Hún var á köflum eiginlega eins og lygasaga því
    þetta mál um umsókn um aðild að Evrópusambandinu hjá þessari ríkisstjórn
    er að verða einhvers konar farsi. En í ljósi þess að hv. þingmaður var
    einu sinni hæstv. utanríkisráðherra þá langar mig að spyrja hvort hann
    geti ímyndað sér af hverju þessi ríkisstjórn eða hæstv. ráðherrar vilji
    ekki svara því hvort þeir líti svo á að Ísland sé umsóknarríki um aðild að
    Evrópusambandinu. Af hverju vilja þau ekki svara þeirri spurningu? Hver
    getur verið ástæðan? Það er augljóst að þau vilja halda í að umsóknin sé
    einhvern veginn virk. Af hverju vilja þau halda í það? Þau eru búin að
    lofa að ætla ekki að fara í þessar aðildarviðræður á þessu kjörtímabili.
    Telja þau að það verði auðveldara að gera eftir næstu kosningar ef þau
    komast til valda eða hver er skýringin á þessu?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Og varðandi málefni fyrrverandi hæstv. utanríkisráðherra, Gunnars
    Braga Sveinssonar, sem er með ólíkindum líka, þá langar mig líka að
    spyrja: Hvað er verið að fela? Nú veit ég að þegar hv. þm. Guðlaugur Þór
    Þórðarson var hæstv. utanríkisráðherra þá barðist hann fyrir vörnum
    Íslands í þessu máli. Hann hélt uppi vörnum og því langar mig að spyrja út
    í þetta mál: Af hverju? Hver eru sinnaskiptin? Af hverju halda þessir
    ráðherrar ekki uppi vörnum fyrir Ísland þegar liggur fyrir að það var gert
    hér áður fyrr?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>