<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T20:28:23" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 20:30:44 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T20:28:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Ég
    reyni að svara þessum spurningum en þær eru svolítið yfirgripsmiklar. Ég
    ætla að reyna að svara þeim eins vel og ég mögulega get og næ kannski ekki
    öllu í fyrsta andsvari.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fyrst: Hvað er þessi ríkisstjórn að hugsa með því að vilja halda
    þessari umsókn einhvern veginn virkri? Við skulum ekki gleyma því — ég var
    ráðherra í nærri fimm ár, eftir það Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir,
    þar á undan Lilja Alfreðsdóttir, ekkert okkar kannast við að
    Evrópusambandið hafi nokkurn tímann sagt að við værum með virka
    aðildarumsókn, fyrir utan það að þeir hættu náttúrlega með IPA-styrkina,
    svo einhver dæmi séu tekin, því að það er ákveðin staða að vera
    umsóknarríki.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það sem gerist eftir alla þessa fundi, sem voru ekki til að gæta
    hagsmuna Íslands, þar sem utanríkisráðherra núverandi og væntanlega
    forsætisráðherra eru að tala við forystumenn Evrópu og það gekk út á það
    að þessi umsókn — sem er vissulega umdeilt hvernig var gengið frá, við
    skulum ekkert draga fjöður yfir það — sé virk. Af hverju held ég að þetta
    sé gert? Ég held að þetta sé gert til þess — vegna þess að þú þarft ekki
    þjóðaratkvæðagreiðslu til að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Við erum
    eina ríkið sem höfum gert það. Það er vanalega kosið um það í
    alþingiskosningum en það þarf heldur ekki. Þannig að ef ríkisstjórnin,
    sama hver hún er og á hvaða tímapunkti, kemur til Brussel og segir:
    Heyrðu, við viljum sækja um, þá getur hún gert það. Það þarf ekki einu
    sinni þingmeirihluta. Evrópusambandinu er nokk sama hvernig það er gert.
    Það virðist sem ástæðan fyrir því að þau vildu halda henni virkri sé að þá
    þyrfti ekki að fá samþykki allra aðildarríkja Evrópusambandsins, sem hefur
    kannski verið umræða sem er óþægileg, því að þá er náttúrlega dregið fram
    hvað fælist í því að vera í Evrópusambandinu o.s.frv. sem á að reyna að
    halda frá fólki. Ástæðan fyrir því að þau vilja halda henni núna virkri og
    vilja ekki draga hana til baka er að þau dreymir um að það komi einhvern
    tímann sú staða upp <ns:bjalla/> að þau geti, og örugglega án
    þjóðaratkvæðagreiðslu, <ns:bjalla/> sótt um aðild að Evrópusambandinu með
    einhverri flýtimeðferð sem myndi þýða litla umræðu í ESB-þinginu og þar af
    leiðandi litla umræðu hér heima. <ns:frammíkall>Heyr,
    heyr.</ns:frammíkall></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>