<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T20:30:56" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 20:32:04 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T20:30:56">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka fyrir svarið en mig langaði í seinna andsvari að
    velta því upp með hv. þingmanni hvort það geti ekki verið að
    ríkisstjórnin, flestallt sem hún gerir, sé liður í því að fara
    bakdyramegin inn í Evrópusambandið. Hvernig byrjaði þetta? Það var samið
    um makrílinn, það steytti á honum síðast. Þá voru bara gerðir lélegir
    samningar varðandi makrílinn. ESB brýtur á okkur og við bara tökum ekki
    til varna. Sjávarútvegurinn, það er ákveðið að veikja hann. Efnahagsmálin
    eru í rugli, það miklu rugli að mann var farið að gruna að menn vildu hafa
    ástandið slæmt þegar það var boðað til kosninga. Og nú kemur þetta, bókun
    35, þar sem EES-reglur sem venjulega mega vera rétthærri þeim lögum sem
    við setjum hér á Íslandi. Það virðist bara hvert málið á fætur öðru vera
    til þess gert að veikja stöðu Íslands en koma okkur bakdyramegin inn í
    Evrópusambandið. Mig langar að segja: Er þetta ósanngjörn vangavelta hjá
    mér eða heldur þú að það sé eitthvað til í þessu?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>