<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T20:32:16" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 20:33:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T20:32:16">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir
    spurningarnar.Ég komst að vísu ekki í að svara áðan varðandi Gunnar Braga
    Sveinsson. Hvað eru menn að fela þar? Það er með slíkum ólíkindum og þetta
    var gert á slíkum hraða. Við hefðum alltaf átt að skoða hvað þarna fór
    fram. Það er með ólíkindum að það hafi ekki verið vilji
    ríkisstjórnarinnar. Ef hún hefði trúað því að hún væri í alvöru virk þá
    hefðu þau átt að sýna öll gögn þáverandi utanríkisráðherra en þau vildu
    ekki gera það. En hv. þingmaður spyr hvað sé verið að fela. Ég veit það
    ekki vegna þess að það er falið. Ég hafði ekki aðgang að því og hafði ekki
    hugmyndaflug í að reyna að leita að því þegar ég var í
    ráðuneytinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan aðeins bara varðandi það — það eru flestar þjóðir sem hafa
    farið inn og legið frekar lágt, eftir fjárhagsáföll eða annað slíkt. Þegar
    núverandi forsætisráðherra lofaði því að við færum ekki í þessa vegferð þá
    talaði hún um að þegar gengur illa í efnahagslífinu vilji menn eitthvað
    annað eins og að fara inn í Evrópusambandið. Bókun 35 er annað mál.
    <ns:bjalla/> Við erum náttúrlega búin að innleiða hana og ég hef lítið
    rætt hana vegna þess að ég vil draga athygli núna að öðrum þáttum sem mér
    finnst ekki að ríkisstjórnin <ns:bjalla/> geti platað okkur í þinginu og
    almenning með því að tala um eitthvað allt annað. Við verðum að klára
    þessi mál sem ég nefndi hér áðan og þau tengjast.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>