<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T13:31:04" skst="SBM" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 13:32:49 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T13:31:04">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="71">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli á notkun tónlistar í
    pólitískum áróðri á samfélagsmiðlum og ábyrgð okkar gagnvart höfundum,
    flytjendum og neytendum. Í aðdraganda nýafstaðinnar þjóðaratkvæðagreiðslu
    mátti heyra tónlist notaða til að styðja pólitísk skilaboð. Var aflað
    tilskilinna leyfa, var rætt við höfunda og eigendur upptakna eða var
    gengið út frá því að tónlist á samfélagsmiðlum mætti nota að vild?
    Leiðbeiningar STEF gera greinarmun á réttinum að laginu og réttinum að
    upptökunni. Leyfi fyrir öðru jafngildir ekki leyfi fyrir hinu; að hægt sé
    að velja lag í snjallsíma staðfestir ekki að nota megi það í kostaðri
    auglýsingu. Þegar þekkt lag eða rödd flytjanda er tengd pólitískum málstað
    getur almenningur talið að listamaðurinn styðji þann málstað. Við eigum að
    virða það að fólk ráði sjálft hvort og hvernig það tengist pólitískri
    baráttu. Tónlist vekur tilfinningar, byggir upp stemningu og gefur
    skilaboðum aukinn kraft, þess vegna er hún notuð. Á bak við hana liggja
    vinna, sköpun og réttindi fólks. Virðing fyrir þeirri vinnu þarf líka að
    birtast í greiðslum. Margir í skapandi greinum eiga erfitt með að lifa af
    störfum sínum jafnvel þó að framlag þeirra til íslenskrar tungu og
    menningar sé mikið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég hvet stjórnmálaflokka og þingmenn til að
    tryggja nauðsynleg leyfi áður en kynningarefni er birt. Flokkarnir ættu að
    móta sameiginlegar leiðbeiningar með STEF og fulltrúum flytjenda og
    útgefenda um leyfisöflun og greiðslur. Jafnframt skora ég á menningar-,
    nýsköpunar- og háskólaráðuneytið að flýta innleiðingu
    DSM-tilskipunarinnar. Hún miðar m.a. að því að styrkja stöðu höfunda og
    flytjenda, tryggja sanngjarnt endurgjald og skýra ábyrgð
    efnisdeilingarveitna. Við sem setjum öðrum reglur eigum að ganga á undan
    með góðu fordæmi. Virðing fyrir íslenskri menningu verður að sjást í því
    hvernig við komum fram við fólkið sem skapar hana. — Takk.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>