<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T13:33:02" skst="EÁs" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 13:35:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T13:33:02">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="71">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Sem þingmaður Norðausturkjördæmis og fyrrum
    bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð þekki ég vel umræðuna um Drekasvæðið og þau
    tækifæri sem þar kunna að vera, enda er þetta ekki ný umræða og ágætt að
    rifja upp að norsk og kínversk olíufélög skiluðu inn leyfum sínum á
    Drekasvæðinu árið 2018. Þau töldu að of litlar líkur væru á að arðbærar
    olíulindir fyndust til að hægt væri að réttlæta áframhaldandi leit.
    Sjálfsagt er að skoða af alvöru öll spennandi tækifæri, ekki síst með
    atvinnuuppbyggingu, orkuöryggi, þjóðaröryggi og náttúruvernd í huga en
    einmitt þess vegna skiptir máli að vanda til verka. Hér í þingsal kallar
    stjórnarandstaðan iðulega eftir gögnum, greiningum og skýrslum. Aldrei
    virðist nóg greint. En þegar kemur að Drekasvæðinu virðast allt í einu
    aðrar reglur gilda. Það hefur verið talað um ævintýralegan ávinning, tugi
    milljóna í mögulegar skatttekjur á hvern Íslending og málið gert að
    stórpólitísku kappsmáli. Í Evrópuumræðu sumarsins heyrðist sú röksemd að
    við ættum ekki að fara að deila olíugróðanum sem væri handan við hornið
    með ríkjum á meginlandi Evrópu. Kannski hefði bara verið ágætt að bíða
    aðeins því nú liggur fyrir ítarleg greinargerð Umhverfis- og orkustofnunar
    á þeim rannsóknum sem þegar hafa farið fram. Niðurstaðan er skýr:
    Hverfandi líkur eru taldar á kolvetni í vinnanlegu magni og stofnunin
    telur ekki forsendur miðað við núverandi þekkingu til að auglýsa eftir
    umsóknum um ný sérleyfi. Það útilokar ekki frekari rannsóknir eða umræðu
    um möguleika svæðisins en það sýnir hvers vegna hæstv. umhverfis-, orku-
    og loftslagsráðherra hefur lagt áherslu á að umræðan byggist á gögnum og
    staðreyndum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við eigum að skoða tækifærin en við eigum líka að fara rétt að,
    því eins og sagt er: Ekki er allt gull sem glóir.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>